02.05.1933
Efri deild: 61. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2874 í B-deild Alþingistíðinda. (4999)
Afgreiðsla þingmála
Jónas Jónsson:
Ég varð var við, að hv. 2. landsk. kvartaði um, hve seint gengju störfin í þessari einu n., sem hann á sæti i. En ég held, að hann megi þar sjálfum sér um kenna, því að hann er þar skrifari og átti sinn þátt í að kjósa formanninn, og býr þar að sjálfum sér og sínum gömlu vinum.