01.03.1933
Neðri deild: 13. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 680 í B-deild Alþingistíðinda. (500)

4. mál, bifreiðaskatt og fl.

Magnús Jónsson:

Ég vildi aðeins mótmæla þeirri fjarstæðu, sem hv. 2. þm. Eyf. hélt fram, að hér í Rvík væru engar bifreiðar, sem ekki notuðu allmikið vegakerfi landsins. Ég held, að þessi skoðun hv. þm. hljóti að stafa af ókunnugleika. Hér í bænum eru mörg hundruð bifreiða, sem aldrei koma á þjóðvegi landsins nema í hæsta lagi einu sinni eða tvisvar sinnum á sumri, ef sett eru á þær sæti og þeim ekið eitthvað út fyrir bæinn á sunnudögum við einhver alveg sérstök tækifæri.

Hv. þm. sagði, að bifreiðaskatturinn væri hentugur skattstofn. Ég skal ekkert um það segja, það er atriði út af fyrir sig, en ég vil ekki viðurkenna það, að vegirnir eigi sérstaklega að standa undir þeim kostnaði, sem af þeim stafar, fremur en önnur mannvirki, sem þjóðin lætur gera. Ég er þó ekki skilyrðislaust að halda því fram, að aldrei megi leggja á sérstakan skatt í sérstöku augnamiði, ef t. d. um það væri að ræða, hvort hrinda skyldi einhverju bráðnauðsynlegu í framkvæmd, og fullséð væri, að það heppnaðist ekki nema með því að fá til þess sérstakan skatt. Undir einhverjum slíkum kringumstæðum gæti hugsazt, að ég fylgdi slíkum skatti sem þessum.

Hæstv. forsrh. talaði um það, að ekki væri sanngjarnt af þdm. að heimta framlengingu á eldri fjárveitingum og nýjar fjárveitingar, en neita að gefa ríkissjóði tekjur á móti. Þetta er út af fyrir sig rétt hjá hæstv. ráðh., en er það endilega sjálfsagt að leggja blessun yfir og framlengja allar fjárveitingar síðari ára? Ég held það væri nær á þessum tímum að slá niður eitthvað af þeim gróðri, sem þotið hefir upp svo milljónum skiptir hin síðari ár. Ég skal ganga í bandalag við hæstv. forsrh. um að slá eitthvað af þessum gróðri niður, ég er ekki í vafa um, að það er þarfara verk en hitt, að íþyngja þjóðinni með okurskatti á farartækjum, sem hún getur ekki án verið.