03.05.1933
Efri deild: 62. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 799 í C-deild Alþingistíðinda. (5009)
171. mál, innflutningur á kjarnfóðri o.fl.
Frsm. (Jón Jónsson):
Ég held, að hv. 4. landsk. hafi gert nautgriparáðunaut Búnaðarfélagsins hálfgerðan bjarnargreiða með því að lesa upp skjal hans í þessu máli. Það er ekki hægt að segja, að það sé beint til sóma fyrir ráðunautinn, þar sem það er fullt af stóryrðum og gífuryrðum í garð samstarfsmanna hans í Búnaðarfélaginu út af því, sem eftir þeim er haft í grg. frv., sem hann kallar vitleysu og heimsku.
Eins og hæstv. ráðh. hefir bent á, virðist ekki hægt eftir áliti ráðunautsins, að framleiða mjólk með því að nota erlent kjarnfóður, fyrir minna en 40 aura á mjólkurlítra í fóðurefni, ef það er notað eingöngu, en ef það er notað sem ábætir, þá kosti ekki nema 10 aura fóðurefni á lítra. Ef þetta er nú rétt hjá ráðunaut Búnaðarfél., þá sýnist það ekki beinlínis benda í þá átt, að ódýrt sé að fóðra með erlendum fóðurbæti, ef það er fjórum sinnum dýrara en að fóðra með heyi. En þetta eru nú rökin, sem ráðunauturinn bar fram sem meðmæli með útlendum fóðurbæti. Mér finnst það lítill sómi vera fyrir ráðunautinn að senda svona plagg inn í þingið, sem ekki var þá betur frá gengið en það, að hv. 4. landsk. strandaði í lestrinum. (PM: Það var nú á einu orði bara). Hv. 1. landsk. vildi draga það út úr umr., meira að segja út af minni ræðu, að þetta frv. þætti ótímabært, en ég held, að bæði ég og hæstv. atvmrh. höfum tekið það skýrt fram, að málið væri sérstaklega tímabært nú, vegna þess, hve erfitt er nú í ári og nauðsyn mikil á því að spara kaup á erlendum vörur, vegna skorts á erlendum gjaldeyri. Hitt hefir og verið skýrt tekið fram, að engin ástæða væri til að óttast, að ráðuneytið misbeitti því valdi, sem frv. veitir því, enda mun ekki ástæða vera til þess að óttast það. Það voru því aðeins hv. 1. og hv. 4. landsk., sem töluðu um það, að frv. væri ótímabært og það bæri vott um vantraust á bændunum að fara að fyrirskipa um það, hvaða tegund fóðurs þeir eigi að nota, en þetta er mesti misskilningur, og ég vil benda þessum hv. þm. á, að það er einmitt einn af þeirra beztu flokksmönnum, hv. þm. Borgf., sem einna beztan þátt hefir átt í því að semja þetta frv., og skil ég ekki í því, að hv. þm. vilji bera það á hann, að hann vantreysti bændum. En þó ekki sé ástæða til að vantreysta bændum í þessu efni, þá getur verið full ástæða til að hvetja þá með löggjöfinni til þess að nota það fóður, sem þeim er jafnhagstætt að nota og annað, en þjóðfélaginu til mikils gagns, að þeir noti fremur.
Hv. 1. landsk. var að óttast það, að frv. yrði misbeitt gagnvart smábýlamönnunum, sem mest þurfa á aðkeyptu fóðri að halda, en ég verð að segja, að það er nokkuð hart, þegar vandræði eru að selja það, sem framleitt er nú með íslenzku fóðurefni, að þá megi ekki stuðla að því jafnvel með löggjöf, að þetta innlenda fóðurefni sé notað í stað erlends kjarnfóðurs, þar sem það er hlutaðeigendum ekki síður hagkvæmt að nota hið innlenda fóður.
Hv. l. landsk. var að tala um það, að smábýlamenn hefðu orðið varir við lítinn velvilja hjá þingi og stjórn, þar sem enn væri ekki sett á stofn sú deildin við Búnaðarbankann, sem þeim er sérstaklega ætluð samkv. lögunum. En ég vil benda honum á það, að ég veit ekki betur en að þessir menn noti ekki síður en aðrir bændur aðra deild bankans, en það er ræktunarsjóður. Og ég get ekki séð, að þessum mönnum hafi verið sýndur meiri kuldi í þessu efni en bændum yfirleitt með því að stofna ekki bústofnslánadeildina, sem eins og allir vita er einnig heimiluð í Búnaðarbankalögunum. Sem sagt, ég held, að þrátt fyrir þetta merkilega skjal nautgriparáðunautsins og röksemdir þessara hv. tveggja þm., þá sé engin ástæða til þess að hika við að samþ. þetta frv., sem er að mörgu leyti nauðsynlegt og stefnir að því að ýta undir skynsamlega innlenda framleiðslu, en á hinn bóginn engin hætta á, að lögunum verði misbeitt.