29.04.1933
Sameinað þing: 7. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 96 í D-deild Alþingistíðinda. (5016)

67. mál, skýrslugerð um opinbera sjóði

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Fyrr á þessu þingi hefir verið rætt töluvert um opinbera sjóði, í sambandi við frv. um vörzlu opinberra sjóða og vantrauststill. vegna Hlaðgerðarkotsmálsins. En þetta frv. hefir alltaf legið í nefnd, og þrátt fyrir það, þó að hæstv. forsrh. hafi lofað að hlutast til um, að það væri afgr., þá hefir það ekki orðið, og það er sýnilegt, að það mun ekki fá afgreiðslu á þessu þingi. En því meira er það áríðandi að fá samþ. þessa till. til þál. um skýrslugerð um opinbera sjóði, þannig að það sjáist, hve mikið opinbert fé er til og hvernig varzla þess sé, og eins skal greint frá um stofnun hvers sjóðs og tilgang, hvernig hinn upphaflegi eigandi hafi ráðstafað honum.

Það munu vera margar milljónir kr., sem liggja í þessum opinberu sjóðum í landinu, og það mikils varðandi, að fullt eftirlit sé um það, og það sé hægt með samskonar löggjöf að hafa eftirlit með því, hvernig þessi varzla er framkvæmd.

Mér heyrðist á umr. um frv. um vörzlu opinberra sjóða, að ýmsir af þeim, sem gerðu aths. um það, teldu sjálfsagt, að þessi till. yrði samþ., og vænti ég því, að ekki þurfi miklar málalengingar um þetta.