11.03.1933
Neðri deild: 22. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 708 í B-deild Alþingistíðinda. (532)

4. mál, bifreiðaskatt og fl.

Frsm. (Bernh. Stefánsson):

Ég er hv. þm. Dal. sammála um það, að þetta hefir reyndar ekki mikla þýðingu. Hann spurðist fyrir um það, hvað mér fyndist bresta á, að Kristneshælið væri formlega afhent ríkinu.

Í n. kom það fram, að nm. þótti það bresta á, að hælið var ekki talið með á skrá yfir eignir ríkisins í LR. Auk þess er það ekki skjalfest, að afhending hælisins til ríkisins hafi farið fram. Það mun vera þetta, sem hv. þm. Dal. átti við, að því var lýst yfir við vígslu hælisins, af þeirri n., sem stóð fyrir byggingu þess, að hælið væri þá afhent ríkinu. En fjhn. þótti það bresta á, að hælið er ekki formlega talið með eignum ríkisins, eins og ég hefi tekið fram.

Ég hygg, að það geti engum örðugleikum valdið að láta nú þessa formlegu afhendingu fara fram, sem enn þykir á vanta, og þar af leiðandi hljóti það að vera skaðlaust, að þessi brtt. verði samþ.

Annars skal ég taka það fram, að það var ekki ég, sem bar fram í n. þessa brtt., en ég sá ekki ástæðu til að kljúfa n. út af svo litlu atriði.