11.03.1933
Neðri deild: 22. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 708 í B-deild Alþingistíðinda. (533)

4. mál, bifreiðaskatt og fl.

Jónas Þorbergsson:

Það kann vel að vera, að eitthvað bresti á það, að í LR. sé þetta formlega fært. Hins vegar brestur ekkert á það, að hælið hafi verið afhent ríkinu. Og á því gætu orðið nokkrir örðugleikar, að afhending þessi gæti orðið formleg hér eftir, því félag það, sem beitti sér fyrir stofnun hælisins, er nú fyrir löngu leyst upp og formaður þess látinn. Ég tel því till. n. ekki einungis óþarfa, heldur beinlínis til þess fallna að valda ástæðulausum og hálfskoplegum örðugleikum í þessu efni.