25.02.1933
Neðri deild: 10. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í B-deild Alþingistíðinda. (555)
18. mál, ljósmæðralög
Frsm. (Sveinbjörn Högnason):
Eins og álit allshn. ber með sér, hefir n. borið frv. saman við önnur lög og ákvæði um þetta efni. Aðalbreyt., sem í frv. felst, er í 6. gr., þar sem sett eru ákvæði um ljósmæður, sem ekki eru skipaðar. Í 5. gr. eru lítilsháttar breytingar um eftirlaun ljósmæðra, ef sýslunefndir eða bæjarstjórnir ákveða ljósmæðrum eftirlaun. Aðrar breyt. frá núgildandi lögum eru ekki teljandi. Nefndin hefir lagt til, að frv. verði samþ. óbreytt. Hinsvegar er komin fram brtt. frá flm. sjálfum, um að ákvæði 10. gr. nái yfir fleiri en ljósmæðurnar sjálfar. N. telur sjálfsagt, að þessi brtt. verði samþ., og geri ég því hana ekki frekar að umræðuefni.