16.03.1933
Efri deild: 26. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 718 í B-deild Alþingistíðinda. (565)

18. mál, ljósmæðralög

Ingvar Pálmason:

Ég skildi ummæli hæstv. dómsmrh. þannig, að það væri ekkert aðalatriði í frv. um ráðstafanir út af fjárþröng sveitarfélaga að halda ákvæðinu um að skylda sýslufélög til þess að greiða 10% af því fé, sem illa stæðum sveitarfélögum kann að verða gefið eftir. Um það er ekki nema gott eitt að segja. En ég vil vekja athygli á því, að frv. þetta minnir á kvaðir, sem á að leggja á sýslufélögin. Verð ég því að endurtaka þau tilmæli mín til hv. allshn., að hún athugi þessi tvö frv. samhliða. Ég sé heldur ekki annað en það sé fyllilega réttmætt við afgreiðslu mála, að athuga önnur skyld mál í sambandi við þau.