16.03.1933
Efri deild: 26. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 720 í B-deild Alþingistíðinda. (569)

18. mál, ljósmæðralög

Guðrún Lárusdóttir:

Hv. 2. þm. Árn. má ekki skilja mig svo, að ég sé mótfallin frv. Ég sé að vísu, að það er rétt hjá honum, að ég hefi misskilið um áhaldakaupin, að nú orðið er það ríkissjóður, sem á að leggja þau til, en það skiptir raunar ekki miklu máli, og get ég ekki betur séð en að 300 kr. sé of lág laun fyrir því. Hæstv. dómsmrh. talaði um það, að mikill eldur hefði logað út af þessu máli nú fyrir skömmu, sem ekki væri gott að kveikja upp aftur. Ég er því ekki kunnug, því það mun hafa verið áður en ég kom á Alþingi, og veit ég því, að hæstv. ráðh. mun þar vera mér kunnugri, en ég get ekki betur séð en þarna ætti að vera hægt að miðla málum. Það er gert ráð fyrir því í frv., að ljósmæður skuli hafa alstaðar jafnt kaup, 300 kr. yfir árið, en mér finnst það skipta nokkru, hvar á landinu þær eru, hvort þær hafa strjálbýl og erfið héruð eða góðar sveitir, þar sem þéttbýli er og góðar samgöngur. Mér finnst það ætti einmitt að gera betur við þær, sem hafa mannfáu og strjálbyggðu héruðin, þar sem ljósmæður vilja síður vera. Það var ekki annað en þetta, sem fyrir mér vakti, og vil ég vona, að hv. n. taki þetta til athugunar.