20.03.1933
Efri deild: 29. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 723 í B-deild Alþingistíðinda. (573)
18. mál, ljósmæðralög
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Ég gat þess við l. og 2. umr., að ég teldi ekki heppilegt að fara að rifja upp gamlar deilur um laun ljósmæðra, þar sem samkomulag náðist um þau fyrir nokkrum árum. Ég get búist við því, að ef þingið ákveður, að öll laun þeirra skuli greiðast úr ríkissjóði eftirleiðis, fari að minnka aðhaldið um launaupphæðina sjálfa, ef ég þekki þingið rétt. Það, sem einkum hefir hamlað á móti mikilli hækkun þessara launa, er það, að sýslusjóðir hafa orðið að greiða þau ásamt ríkissjóði. Ég er því alveg mótfallinn því, að færa þau að öllu leyti yfir á ríkissjóð. Þessi breyting hefir í för með sér um 65 þús. kr. útgjöld fyrir ríkissjóð á ári. Þegar þess er gætt, að tekjuhalli hefir verið á þjóðarbúskapnum allmörg ár undanfarið, er ekki um annað að gera en auka tekjustofnana og minnka gjöldin. Hér er því farið inn á öfuga leið.
Ég nefni þessar 65 þús. kr. til þess að sýna, að ríkið fer nú ekki alveg varhluta af kostnaði vegna ljósmæðralaganna. Öll bygging laganna hvílir á því, að yfirsetukonurnar séu starfsmenn sýslufélaganna, en ekki ríkisins. Sýslunefndir ráða þær til starfans og skipa þær sem sína sýslunarmenn, en ekki starfsmenn ríkissjóðs, þó það hafi komizt á, að ríkissjóður launaði þær að nokkrum hluta. Það er náttúrlega ljóst, að hagur sýslufélaga er ekki góður, en ég hélt það væri hv. þm. kunnugt, að hagur ríkissjóðs er slæmur. Það er þó sem betur fer svo með mörg sýslufélög, að þau eru því sem næst skuldlaus, en á ríkissjóði er mikill halli og á fjárlögum yfirstandandi árs er h. u. b. 1 millj. kr. tekjuhalli. Ég vil því mælast til þess, að hv. þd. felli till. n. um það, að flytja þessi útgjöld yfir á ríkissjóðinn.