20.03.1933
Efri deild: 29. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 732 í B-deild Alþingistíðinda. (584)
18. mál, ljósmæðralög
Jón Baldvinsson:
Það var varla við því að búast, að þetta mál gengi hljóðalaust í gegn. Er ekki langt síðan samþ. voru 1. um launakjör, sem voru mitt á milli þeirra krafna, sem hæstar voru og þeirra, sem stytzt fóru. Finnst mér því hv. 2. þm. Eyf. þurfi ekki að undra, þótt fram komi við þessar umr. atriði, sem mikið hefir verið deilt um undanfarin þing, sem sé launakjör ljósmæðra. Ég hefði ekki haldið, að hægt væri að bæta það, sem ábótavant var í þessu efni, en úr því till. á þskj. 200 er fram komin, þá lýsi ég hér með yfir því, að ég mun greiða henni atkv. mitt. Það er rétt, að hér er um talsverða fjárhæð að ræða, sem greiðist af ríkissjóði eða sýslusjóðum. En auðvitað er ekki hægt að hækka laun starfsmanna ríkisins án aukinna útgjalda ríkissjóðs. Býst ég reyndar við, að margir muni leggjast á móti þessu, eftir öllum barlóminum um ástæður ríkissjóðs að dæma. En það myndi þó engan veginn steypa hag ríkissjóðs, þótt till. næði samþykki. Hér yrði um 20—30 þús. kr. aukakostnað að ræða.
Ég vil ekki blanda mér inn í deilur hæstv. stj. og hv. form. allshn. um það, hver eigi að greiða laun ljósmæðra í sveitum, en mér finnst, eins og hv. þm. Hafnf., að þau ættu að greiðast öll úr ríkissjóði. Skal ég svo ekki fjölyrða um þetta, en við atkvgr. mun ég sýna minn hug til þessara till.