03.03.1933
Neðri deild: 15. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 747 í B-deild Alþingistíðinda. (631)
26. mál, jarðrask við sjó í kaupstöðum, kauptúnum og sjávarþorpum
Pétur Ottesen:
Ég býst við, að það sé fullkomin ástæða fyrir löggjöfina að sporna við jarðraski og landspjöllum af völdum sjávareinkum í kaupstöðum og þorpum og nágrenni þeirra, með því að reisa skorður við grjótnámi og malartöku í fjörum. Í 1. gr. frv. er þannig bannað að taka grjót og möl í fjörum eða nærri flóðmáli án þess að leyfi vitamálastjóra komi til. Ég skil 1. gr. frv. þannig, að þetta sé yfirleitt bannað og að ekki megi taka möl eða byggingarefni í fjörum eða sjávarbökkum, nema með leyfi eða samþykki vitamálastjóra. Ég held, að þetta geti valdið talsvert mikilli fyrirhöfn og óþarfa skriffinnsku, sem komast mætti hjá að skaðlausu í flestum tilfellum. Ég er ekki í vafa um, að víðast er aðstaðan þannig í kaupstöðum og sjávarþorpum, að óhætt mundi að leggja það á vald hlutaðeigandi hreppsnefnda og bæjarstjórna, að skera úr því, hvar einstaklingar megi taka grjót og möl til bygginga. Þess vegna virðist mér það vera að seilast um hurð til loku að binda þessi leyfi ófrávíkjanlega við vitamálastjóra. Að vísu er vitamálastjóri og starfsmenn hans orðnir kunnugir víða á landinu að því er þetta snertir, en þó ekki alstaðar, og skortir þar mikið á. Ef þeir ættu því að byggja úrskurði sína á þekkingu og kunnugleik á hverjum stað, þá þyrftu þeir oft að takast ferð á hendur og sjá með eigin augum, hvernig til hagar. Ég vil nú skjóta því til hv. allshn. að athuga, hvort eigi muni í mörgum tilfellum óhætt að fela bæjarstj. og hreppsn. þetta úrskurðarvald. En þar, sem sérstaklega væri hætta á landbroti vegna jarðrasks og bæjarstjórnir og hreppsn. álíta sig ekki færar um það að dæma, þá ættu þær í þeim tilfellum að leita aðstoðar og úrskurðar viðkomandi verkfræðings. Ég hugsa mér, að ákvæði verði sett inn í frv. þess efnis, að vitamálastjóra og þeim verkfræðingum, sem með honum starfa, verði falið að athuga það á ferðalögum sínum, hvar mest er hætta á landbroti og skemmdum af völdum sjávar, og semja skrá yfir þau þorp og kaupstaði, sem hafa sérstaka aðstöðu í þessu efni og sem helzt þyrfti að gjalda varhuga við að því er landspjöllin snertir. Ég er viss um, að það er óþörf fyrirhöfn að einskorða þetta þannig, að í hverju einstöku tilfelli verði þessum málum vísað til vitamálastjóra, og óska ég, að hv. n. taki þetta til athugunar.