07.03.1933
Neðri deild: 18. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 750 í B-deild Alþingistíðinda. (637)

26. mál, jarðrask við sjó í kaupstöðum, kauptúnum og sjávarþorpum

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Það er rétt hjá hv. þm. Borgf., að hann mæltist til þess við 2. umr. þessa máls, að allshn. tæki til frekari athugunar viss atriði í frv., sem hann benti á. Hitt er ekki rétt hjá hv. þm., að n. hafi ekki gert þetta. Hún hefir þvert á móti borið sig saman um þessi atriði, en orðið á eitt sátt um það, að leggja ekki til neinar breyt. Hún lætur því sitja við það, sem hún hefir lagt til.