04.03.1933
Neðri deild: 16. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 767 í B-deild Alþingistíðinda. (664)

32. mál, ullarmat

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Út af síðustu aths. hv. þm. Borgf., um það, að æskilegt væri e. t. v. að setja inn í frv. ný ákvæði um, að yfirullarmatsmaðurinn væri skyldur til að hafa á hendi nokkra fræðslustarfsemi, m. a. að flytja útvarpserindi um ullarverkun, þá skal ég taka það fram, að ráðuneytinu þótti ekki ástæða til að setja í frv. ríkari ákvæði í þessa átt heldur en þar eru um það, að ullarmatsmanni beri að veita ullarmatsmönnum fræðslu um ullarmatið. En í frumuppkastið að frv. vorum við að hugsa um að setja samskonar ákvæði, sem hv. þm. talaði um. Við nánari athugun þótti þó ekki ástæða til að taka þetta fram í l., heldur væri réttara að taka það fram í erindisbréfi ullarmatsformannsins. En þætti n. tryggilegra að taka þessi ákvæði upp í frv., þá er síður en svo, að ég sé því nokkuð mótfallinn.