15.03.1933
Efri deild: 25. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í B-deild Alþingistíðinda. (718)

31. mál, tilbúningur og verslun með smjörlíki og fl.

Frsm. (Jón Jónsson):

Hvað það snertir að setja beint inn í lögin ákvæði um hámark þess hundraðshluta, sem blanda skuli smjörlíkið með íslenzku smjöri, þá sá landbn. ekki ástæðu til þess. Hún gerði ráð fyrir, að stj. hagaði sér eftir ástæðum í þessu efni. Fari t. d. eftir því með hámark hundraðshlutans, hversu smjörframleiðslan væri mikil í landinu, og yfirleitt treystir n. því, að stj. gæti alls hófs um þessa hluti. Þá má og geta þess, að slíkt hámark sem þetta er ekki í hinum norsku lögum, sem frv. er að nokkru sniðið eftir. Líka gæti komið til mála að setja ákvæði um það, að allt erlent smjörlíki, er hingað flyttist, skyldi blandað ákveðnu magni af smjöri, en n. frestaði ákvörðun um það. Annars býst ég ekki við, að hv. 2. landsk. þurfi að óttast það svo mjög, þó að slíkt hámark sé ekki fastákveðið í lögunum. Smjörframleiðslan verður tæplega svo mikil í náinni framtíð. Mun landbn. því ekki bera fram brtt. í þessa átt.