15.03.1933
Efri deild: 25. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 782 í B-deild Alþingistíðinda. (719)

31. mál, tilbúningur og verslun með smjörlíki og fl.

Jón Baldvinsson:

Því skal ekki neitað, að það er til góðs fyrir neytendur að fá smjörlíkið blandað íslenzku smjöri. Að því er ég alls ekki að finna. En önnur hlið þessa máls er sú, að verði það blandað með miklu af smjöri, hlýtur það að verða dýrara. Það er vitanlegt, að kaupstaðafólk yfirleitt neytir allmikils af smjörlíki, og fæst af því hefir úr miklu að spila. Gæti því beinlínis farið svo, að smjörlíkið yrði of dýrt og neyzla þess minnkaði, enda þótt það batnaði að næringargildi við blöndun smjörsins. Annars vil ég vekja athygli á því, að framleidd er sérstök tegund smjörlíkis til iðnaðar, og mun sennilega ekki vera ætlazt til, að það smjörlíki verði blandað neinu smjöri. (Atvmrh.: Það stendur aðeins heimild). Já, það er rétt. En ég er ekkert hrifinn af þessum takmarkalausu heimildum, og vildi því biðja hv. landbn. að athuga til 3. umr., hvort rétt sé, að allar stjórnir fái takmarkalausa heimild til þess að láta blanda smjörlíkið eins og þeim sýnist.