17.03.1933
Efri deild: 27. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 787 í B-deild Alþingistíðinda. (731)
31. mál, tilbúningur og verslun með smjörlíki og fl.
Frsm. (Jón Jónsson):
N. hefir borið ráð sín lítillega saman út af þeim umr., sem hér urðu við 2. umr. um að fella niður úr frv. upptalninguna í 1. gr. á ostlíki, rjómalíki og mjólkurlíki og komst n. að þeirri niðurstöðu, að ekki væri ástæða til að fella þessa upptalningu niður, enda óviðfelldið að hafa engin ákvæði í 1., er tryggi eftirlit með þessum hlutum, ef til kæmi, því að þótt engin ákvæði verði höfð í l. um þetta, verður þó ekki litið öðruvísi á eftir sem áður en svo, að heimil sé framleiðsla á þessum hlutum í landinu, og eins innflutningur á þeim.
Eins og ég drap á við 2. umr., urðu nokkrar umr. um það í n., hvort ekki gæti verið ástæða til að bera fram brtt. við 6. gr., sem færi í þá átt að heimila atvmrh. jafnframt að ákveða, að í öllu erlendu smjörlíki, sem selt er hér á landi, skuli vera sami hundraðshluti af íslenzku smjöri eins og áskilið væri um íslenzkt smjörlíki, og hefi ég nú borið fram brtt. á þskj. 175, sem fer fram á þetta. Hið helzta, sem er að athuga í sambandi við þessa till., er það, hvort ákvæði hennar mundi geta talizt móðgandi fyrir þær þjóðir, sem flytja hingað smjörlíki, en engin ástæða virðist vera til þess að óttast þetta. Hingað mun aðeins flytjast smjörlíki, svo að talizt geti, frá Noregi og Hollandi, og að því er Noreg snertir, þá eru þar í gildi samskonar ákvæði viðvíkjandi erlendu smjörlíki, sem þangað er flutt inn. Hinsvegar er ástæða til að setja þetta ákvæði vegna innlendu smjörlíkisframleiðendanna, sem hætt er við, að ella gætu ekki þolað samkeppnina við erlenda framleiðendur, sem þurfa minna að kosta til framleiðslunnar, auk þess sem varla er ástæða til að vera að undanþiggja útlendinga undan þeim kvöðum, sem innlendir menn verða að bera. Ég vona því, að d. geti fallizt á þessa till.