17.03.1933
Efri deild: 27. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 792 í B-deild Alþingistíðinda. (736)
31. mál, tilbúningur og verslun með smjörlíki og fl.
Jón Baldvinsson:
Ég vil endurtaka það, að það getur orðið mjög bagalegt, ef þetta ákvæði, sem felst í brtt. hv. 3. landsk., tekur einnig yfir iðnaðarsmjörlíki, því að það mundi hafa í för með sér, að ekki verði hægt að fá hingað þær tegundir iðnaðarsmjörlíkis, sem um lengri tíma hafa verið keyptar hér, eins og ég áður benti á. Þá má líka benda á það, að þótt lítið sem ekkert sé nú flutt inn af útlendu smjörlíki vegna gjaldeyrisvandræðanna, er ekki ólíklegt, að innflutningur útlends smjörlíkis takist aftur að einhverju leyti, þegar þessum vandræðum léttir af, ef þetta ákvæði væri ekki sett í l., sem mundi verka sem aðflutningsbann á erlendu smjörlíki, eins og ég hefi bent á, og er þetta þó ekki tilgangurinn með frv., eftir því sem flm. lýsti honum, heldur að skapa meiri markað fyrir íslenzkt smjör, og alls ekki að takmarka eða banna innflutning á erlendu smjörlíki. Ég mun því ekki geta greitt þessari till. hv. 3. landsk. atkv.