17.03.1933
Efri deild: 27. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 794 í B-deild Alþingistíðinda. (740)
31. mál, tilbúningur og verslun með smjörlíki og fl.
Jón Þorláksson:
Ég held, að það sé nauðsynlegt, að sett séu ákvæði í l. um það, að allt erlent smjörlíki, sem til landsins flyzt, skuli blandað með sama hundraðshluta af smjöri og hið innlenda. Og væri æskilegast, að það yrði tilskilið, að það smjör væri íslenzkt. En eins og ég tók fram áðan, er þetta ekki tekið fram í till. hv. 3. landsk. Samkv. henni er stj. heimilað að veita leyfi til innflutnings á óblönduðu smjörlíki, og smjörlíki blönduðu íslenzku smjöri.
Ég veit ekki, hvort ég á að misbjóða hv. þd. og eyða orðum að því að hrekja þá fjarstæðu, sem kom fram í ræðu hv. 2. þm. Eyf. Hann hélt því fram, að verð á smjörlíki hefði lækkað töluvert nú hin síðustu árin, og vildi draga af því þá almennu ályktun, að það stafaði af því, að ekki hefði verið frjáls innflutningur á því, a. m. k. 1—2 undanfarin ár. Þessa ályktun gerði hann alveg án þess að athuga hið minnsta, hvort smjörlíki hefði ekki lækkað líka annarsstaðar. Það sjá allir, hversu fráleit þessi staðhæfing er.