20.03.1933
Efri deild: 29. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 795 í B-deild Alþingistíðinda. (743)

31. mál, tilbúningur og verslun með smjörlíki og fl.

Frsm. (Jón Jónsson):

Landbn. hefir tekið málið til athugunar á ný og hefir orðið ásátt um að koma fram með brtt. á þskj. 201. Í þessari brtt. felst hið sama og í brtt. á þskj. 175, sem þar með er tekin aftur. Aðeins er hugsunin skýrara orðuð og meir í samræmi við það, er fram kom við fyrri hluta þessarar umr. Í brtt. 201 er kveðið fast að orði um það, að sami hundraðshluti af smjöri skuli vera í því útlenda smjörlíki, sem innflutt er og selt hér á landi, sem. ákveðið er, að vera skuli í innlendu smjörlíki. Ennfremur er ráðherra heimilað að ákveða, að það útlent smjörlíki, sem inn er flutt, skuli vera blandað íslenzku smjöri. Er það ákvæði sett inn í heimildarformi, svo hægt sé að fyrirbyggja, að það ákvæði verki sem innflutningsbann, sem sumir óttast, að það myndi gera, ef það væri skilyrðislaust ákveðið í 1., að smjörið skyldi vera íslenzkt. Er ekki ástæða til að fjölyrða frekar um þetta. Aðeins vil ég mælast til þess f. h. n., að brtt. verði samþykkt.

Þá skal ég stuttlega minnast á brtt, hv. þm. Hafnf. á þskj. 183, sem eru um það, að fella orðið „mjólkurlíki“ burt úr frv. N. hefir ekki séð neina ástæðu til þess, að þetta orð verði fellt burt úr frv. Ef ekki á beint að banna innflutning eða tilbúning á slíkri vöru, þá telur n. ekki nema gott og eðlilegt, að eftirlit fari fram með því. Að öðru leyti lætur hún brtt. þessar hlutlausar. Sama er að segja um brtt. á þskj. 188. N. getur ekki fallizt á, að ástæða sé til að undanþiggja það smjörlíki, sem notað er til iðnaðar, aðallega vist brauðgerðarhúsa, því að vera blandað smjöri eins og annað smjörlíki, sem inn er flutt.

Ég átti víst ekki eftir nema stutta aths. og skal þá líka láta máli mínu lokið.