20.03.1933
Efri deild: 29. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 797 í B-deild Alþingistíðinda. (745)
31. mál, tilbúningur og verslun með smjörlíki og fl.
Bjarni Snæbjörnsson:
Ég hefi flutt brtt. á þskj. 183, og verð ég að fara nokkrum orðum um þær, þar sem hv. frsm. mælti á móti þeim. Ég vil taka það fram, að þótt ekki sé bannað með 1. að flytja inn mjólkurlíki, þá er þó hægur vandi að banna það. Og mér finnst alveg óviðurkvæmilegt, að stuðlað sé að því með löggjöf að hrinda af stað mjólkurlíkisgerð. Slíkt yrði aðeins gert vegna gróðavonar, þar sem mjólkurlíki er ódýrara en mjólk. Af því mundi svo leiða, að farið yrði að nota mjólkurlíki, t.d. til smjörlíkisgerðar, í stað mjólkur, og til annarar neyzlu. En hvorttveggja sjá hv. dm., að er til hins verra. Sérstaklega mundi það draga úr gildi þessara 1., þar sem hið sama kæmi út og nú er, þó farið sé að blanda smjörlíkið með smjöri, ef í stað mjólkur er farið að nota mjólkurlíki. Getur þá farið svo, að smjörlíkið verði ekki bætiefnaríkara, og er þá hinn góði tilgangur 1. tapaður. Og á sama hátt og æskilegt er að bæta smjörlíkið, er það og æskilegt, að fólkið noti góða og ósvikna mjólk. Vona ég því, að brtt. mínar verði samþ. — Mér finnst algerlega óviðurkvæmilegt, að Alþ. hvetji til, að gengið sé inn á þessa braut, þar sem nóg mjólk er til í landinu. Og sízt ættu bændur þeir, sem sæti eiga á Alþ., að greiða atkv. gegn brtt. mínum.