22.02.1933
Neðri deild: 7. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 816 í B-deild Alþingistíðinda. (783)

21. mál, byggingarsamvinnufélög

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Það hefir þótt koma í ljós við byrjun á framkvæmd eða undirbúning á notkun 1. um byggingarsamvinnufélög, er sett voru á síðasta þingi, að nokkrir agnúar væru á þeim, sem æskilegt væri að breyta, svo l. yrðu hagfelldari og auðveldari í framkvæmd. Sérstaklega á þetta við um hina sameiginlegu ábyrgð félagsmanna, sem 3. gr. l. gerir ráð fyrir. Í l. um byggingarsamvinnufélög er svo fyrir mælt, að félagsmenn geti verið fæstir 15 að tölu. Hinsvegar eru engin takmörk að ofan um félagafjölda í samvinnubyggingarfélögunum. Ef nú félagar eru mjög margir, þá er auðsætt, að þeir geta ekki allir notið lögmæltra félagshlunninda jafnsnemma. Sumir hafa e. t. v. þegar fengið lán til byggingar, en aðrir eru að safna í sjóð vegna væntanlegrar byggingar. Þetta veldur misræmi og óánægju meðal félagsmanna innbyrðis, þegar svo er fyrir mælt sem nú er í 1., að félagsmenn séu allir í samábyrgð, hvort sem þeir eru farnir að njóta félagshlunninda eða ekki. Þykir hentugra, að hin sameiginlega ábyrgð falli ekki á félagsmenn fyrr en lán er tekið vegna þeirra. Hefir því félag það, sem stofnað hefir verið hér í bæ samkv. 1. um byggingarsamvinnufélög, farið þess á leit, að 1. verði breytt svo, að félögunum verði skipt í ábyrgðarflokka fyrir þá menn, er reisa hús samtímis, og ábyrgist þá hver flokkur sitt lán. Sýnist það koma í sama stað, ef 15 menn verða minnst í flokki eftir sem áður. Er það aðeins gert til þess að félagsskapurinn leysist ekki upp í mörg 15 manna félög og að hægt verði til hlítar að nota reynslu þá, er fæst við byrjunarstarf og framkvæmdir félaganna.

Aðrar breyt. frv. eru smávægilegar. Ein er sú, að atvmrn. fái samþykktir byggingarsamvinnufél. til yfirlits og breytinga, eftir því sem ástæða þykir til, og að þær öðlist eigi gildi fyrr en ráðuneytið hefir staðfest þær. Verður það að teljast nauðsynlegt ákvæði, þar sem ábyrgð ríkissjóðs er veitt fyrir lánum félaganna.

Þá er enn lögð til sú breyt., að felld séu niður ákvæði l. um fjölda herbergja hverrar íbúðar. Er það skipulagsatriði. hvað hver óskar margra herbergja, er ekkert segir til um rúmtakið. Væri rétt, að væntanleg n. tæki til athugunar, hvort ekki bæri frekar að tilgreina, hvað rúmtakið mætti mest vera, svo tilgangi l. um að ábyrgð ríkissjóðs nái eingöngu til meðalstórra íbúða verði náð. — Að öðru leyti mun ég eigi fjölyrða frekar um þetta frv. Vil ég leyfa mér að leggja til, að því, að lokinni umr., verði vísað til hv. allsherjarnefndar.