13.03.1933
Neðri deild: 23. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 818 í B-deild Alþingistíðinda. (785)

21. mál, byggingarsamvinnufélög

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):

Allshn. hefir athugað frv. þetta, og leggur hún til, að það sé samþ. með einni lítilsháttar breyt.

Lög þau, sem frv. leggur til að breytt verði, voru sett af þinginu í fyrra. Er þegar hafinn undirbúningur um að nota þau sem starfsgrundvöll og byggingarfélag stofnað, sem þegar hefir hafið undirbúning um starfrækslu, er byggist á 1. En félag þetta hefir óskað breyt. á 1., og er slíkt ekki nema eðlilegt, að eitthvað megi betur fara um 1., sem eru algert nýmæli, og að það sjáist við nánari athugun og framkvæmdir á þeim.

Um frv. er það að segja, að allshn. telur breyt. þær á 1., sem 1., 2. og 3. gr. ráðgerir, til bóta og sjálfsagt að samþ. þær. En á breyt. þá, er felst í 4. gr. frv., getur hún ekki fallizt. Hún gat að vísu fallizt á, að hámark stærðar á íbúðum í lögunum frá í fyrra, fjögur herbergi og eldhús, væri fulllágt sett. En að setja enga takmörkun, aðra en eftirlit ráðh., með því, að ekki væri of stórt byggt, gat hún ekki fallizt á. Allshn. telur það ekki samrýmast tilgangi 1., að svo stórt sé byggt, að herbergi eða íbúðir verði leigðar út eða að menn, sem njóta þeirra hlunninda, sem byggingarsamvinnulögin veita, geti haft svo stórar íbúðir sem þeim sýnist. Hún vill því setja þau takmörk, að íbúðirnar megi vera allt að sex herbergi hver, í stað þess, að ekkert hámark var í frv. stjórnarinnar. Ég held svo, að ekki sé ástæða til að fara fleiri orðum um þetta.