13.03.1933
Neðri deild: 23. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 820 í B-deild Alþingistíðinda. (788)

21. mál, byggingarsamvinnufélög

Pétur Halldórsson [óyfirl.]:

Herra forseti! Mér sýnist þetta vera ískyggileg stefna, sem farið er inn á. Því að eins og nú horfir þessu máli — og jafnvel með þeirri breyt., sem allshn. hefir viljað gera á þessu frv. —, þá fæ ég ekki betur séð en að allir einstaklingar, sem vilja koma sér upp eigin húsnæði í Rvík, geti komizt undir ákvæði þessara l., og þá er komið inn á þá braut að leggja fram styrk til að byggja yfir alla einstaklinga, sem byggja vilja.

Svo undarlega ber nú við, að í sömu andránni og verið er að koma upp sjóð til styrktar verkamönnum til að byggja og ríkið veitir einnig öflugan stuðning til þess að framkvæma þessi 1., sem hér er um að ræða, þá má heita, að veðdeild Landsbankans sé lokuð. Hún lætur að vísu lán ennþá, en einungis þannig, að lántaki verður sjálfur að sjá um sölu veðdeildarbréfanna. Oft mega slík kjör heita næstum óviðunandi. Ríkið gerir ekkert til þess að stuðla að hagstæðum markaði bréfanna fyrir lántakendur. En á sama tíma er þó tekið til að stofna félög manna til þess að koma sér upp húsnæði, þar sem ríkissjóður sjálfur á að leggja fram ekki svo lítinn hluta af húsverðinu. Og nú er reynt að þoka málinu í það horf, að allir, sem vilja koma sér upp húsi — ef þeir vilja gera það undir vissum skilyrðum —, geti orðið þessara hlunninda aðnjótandi frá ríkissjóði. Það mun láta nærri, að ef byggja má 6 herbergja íbúð með styrk samkv. þessum l., þá má segja, að það nái til allflestra, sem nú byggja sér hús.

Við erum að komast út á mjög alvarlega braut, a. m. k. ef á nú sama sem að þvinga alla þá, sem byggja vilja hús, til að leita eftir þessum styrk, með því að gefa þeim ekki kost á lánum annarsstaðar. Ríkisvaldið hefir þó aðstoðað menn um sölu veðdeildarbréfa. En ef ríkisvaldið og Alþingi ætlar að hætta að skipta sér af verðgildi veðdeildarbréfanna, en taka til að styrkja þá með ríkisframlagi, sem undir einhverjum sérlögum vilja taka þátt með öðrum í að byggja yfir sig, þá sýnist mér vera komið út á hættulega braut. Vil ég benda hv. n. á að athuga vel þessa stefnu. Ég verð að telja það hættulegt, ef frjálsar lánveitingar gegnum banka, skilyrðislausar að öðru leyti en veðdeild venjulega setur, eiga að lokast mönnum til húsabygginga, en opnaðir verða á víða gátt ýmsir aðrir möguleikar, mjög skuldbindandi fyrir ríkissjóð. Þetta er því hættulegra sem slíkir möguleikar eru minna takmörkunum háðir. Og hér á í þetta skipti að gera ríflega rýmkun með því að færa herbergjatölu íbúða úr 4 upp í 6. Næst verður tölutakmarkið kannske alveg afnumið, eins og gert var ráð fyrir í frv. stj.

Ég get nú varla fengið mig til að álíta, að sú sé meining þingsins, að ekki beri lengur að aðstoða landsmenn með fjárútvegunum til þess að veðdeild Landsbankans geti starfað, en opna á víða gátt aðrar leiðir, sem baka ríkissjóði útlát, til þess að hjálpa þeim að byggja, sem enginn slíkur stuðningur er nauðsynlegur.