16.03.1933
Neðri deild: 26. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 821 í B-deild Alþingistíðinda. (791)
21. mál, byggingarsamvinnufélög
Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):
Ég hafði kvatt mér hljóðs, þegar málið var hér til umr. á dögunum, og verð því að leyfa mér að segja nú nokkur orð út af ræðu hv. 4. þm. Reykv. þá. Ræða hv. þm. snérist meira um þetta mál almennt og þá stefnu, sem upp var tekin með 1. frá seinasta þingi, heldur en um þær breyt., sem hér liggja fyrir. Verð ég því að vænta þess, að hæstv. forseti leyfi mér að tala nokkuð almennt um málið, þótt það sé ekki venja við þessa umr. — Hv. 4. þm. Reykv. taldi farið inn á hættulega braut með l. um byggingarsamvinnufélög, og beindi því til n., hvort hún vildi ekki athuga um það, hvort ekki væri nauðsynlegt að gera frekari breyt. á 1. en hér er farið fram á í frv. stj. Og einkum taldi hv. þm. varhugavert, að ríkið legði fram ekki svo lítinn styrk með þessu, og taldi, að með því fyrirkomulagi væri mikið að styrkja hvern borgara í þjóðfélaginu til þess að byggja yfir sig. Ég vil ráðleggja hv. þm. að lesa lög þau, sem samþ. voru á síðasta þingi, áður en hann talar um þetta atriði. Hann átti ekki sæti á þingi í fyrra og er 1. því sennilega ekki kunnugur. Þar er alls ekki um neinn fjárstyrk að ræða. Býst ég við, að hv. þm. rugli saman 1. um verkamannabústaði og þessum 1. Ríkissjóður ábyrgist lán fyrir byggingarsamvinnufélögin samkvæmt ákveðnum skilyrðum, sem sett eru í l. En eins og við vitum, þá er það ekkert einsdæmi, að ríkissjóður gangi í slíkar ábyrgðir. Ríkið ábyrgist t. d. veðdeildarlánin og stendur því í bakábyrgð fyrir þeim að miklu leyti. Enginn þarf að efast um, að í l. um byggingarsamvinnufélög sé tryggilega frá því gengið, að þessi ábyrgð sé sem áhættuminnst; m. a. má sjá það af því, að húsin má ekki veðsetja fyrir meiru en 80% af kostnaðarverði þeirra. Það er margt fleira í þessum 1., sem ég álít stefna til mikilla bóta frá því, sem áður hefir tíðkazt, t. d. að öll óeðlileg verðhækkun á húsunum er fyrirbyggð. Bannað er að selja eignirnar hærra verði en kostnaðarverði nemur, og þar með komið í veg fyrir þá óhæfu, að fasteignir séu sprengdar upp úr öllu valdi, og svo hvílir sú verðhækkun eins og farg síðar á eigendum og almenningi. Hv. þm. minntist á veðdeildina í þessu sambandi og að nær væri að gera henni mögulegt að starfa en að kasta fé til þessara mála. Ég skal ekki rökræða það út af fyrir sig og vil benda á það, að nauðsynlegt mun vera, að veðdeildin fái fé til umráða fyrr en seinna. En hinsvegar held ég, að megi benda á ýmislegt, sem sýni, hvernig veðdeildin einmitt lánar fé sitt og sízt er til eftirbreytni. Allmikið af fjármagninu hefir verið lánað út á gömul hús, sem hækkað hafa í verði vegna ýmissa atburða, en féð hefir ekki gengið til að koma upp nýjum húsum, nema þá helzt „luksus“íbúðum og „villu“hverfum. L. um byggingarsamvinnufélög miða að því, að komizt verði framhjá því skeri, og tilgangur þeirra er að koma upp tiltölulega ódýrum, einföldum byggingum, sem geta fullnægt kröfum þeirra, sem ekki gera því meiri og hóflausari kröfur. Ég segi fyrir mitt leyti, að ég tel l. frá seinasta þingi mjög merkilegt spor til að koma þeim málum í heppilegt horf að ýmsu leyti. Þar er m. a. svo um búið, að mönnunum, sem mynda með sér byggingarsamvinnufélag og vilja koma upp húsi eða íbúð, er gert að skyldu að leggja fram sem nemur 1/5 af stofnkostnaðinum sjálfir, en fái svo hjálp til þess að geta komið upp byggingunni, þegar þeir geta lagt fram þann hluta af byggingarkostnaði, sem áskilið er.
Mér skildist á hv. 4. þm. Reykv., að honum þætti verr farið, að lagt skyldi til, að hámarksstærð íbúðanna yrði aukin. Ég get gengið inn á þá hugsun, sem liggur til grundvallar þessu, að ekki sé rétt að byggja stærri íbúðir en þarf og svara til þess, sem teljast verður hæfilegt öllum almenningi. Hinsvegar féllst n. á það, að fjögurra herbergja íbúðir myndi vera fulllágt, og vildi ákveða stærð íbúðanna allt að 6 herbergi. Ég get ekki látið hjá líða að minnast á þetta atriði í sambandi við ræðu hv. 4. þm. Reykv. Þá má benda á, að hér er einmitt jarðvegur fyrir slíkan félagsskap. Nú hefir þegar verið stofnað byggingarsamvinnufélag hér í Rvík og hafinn mjög myndarlegur undirbúningur um að koma upp byggingum, og eftir því sem ég veit bezt, þá er þessi félagsskapur alls ekki bundinn við pólitíska flokka, heldur munu allir stjórnmálaflokkar hafa skipað sér um þetta félag, sem virðist búa yfir heppilegri lausn húsnæðismálanna. Þessar breyt. á 1. eru bornar fram af hæstv. stj. sökum þess, að við framkvæmd l. hefir þótt koma í ljós, að þær breyt., sem hér liggja fyrir, muni heppilegar. Er mönnum nú ætlað að vera í ábyrgðarflokkum út af fyrir sig, en ekki sameiginleg ábyrgð fyrir alla félagsmenn, og virðist n. það til bóta.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta, en n. hefir samkv. ósk hæstv. atvmrh. tekið brtt. sínar aftur til 3. umr. málsins.