16.03.1933
Neðri deild: 26. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 827 í B-deild Alþingistíðinda. (794)

21. mál, byggingarsamvinnufélög

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):

Ég skal ekki lengja umr. mikið. Hv. 4. þm. Reykv. viðurkenndi, að það væri ekki um beinan styrk að ræða úr ríkissjóði til byggingarsamvinnufélaga, en hann var að tala um, að hér væri að ræða um fjárstyrk, sem kæmi eftir á, að ríkissjóði yrði að blæða vegna ábyrgðanna, sem hann tæki á sig vegna byggingarsamvinnufélaganna. Ég benti á í ræðu minni áðan, að hér væri svo tryggilega frá gengið, að lítil hætta mundi á því vera, og hv. þm. (PHalld) benti ekki á neitt atriði í 1. til þess að hrekja, að svo væri, enda er ekki neitt, sem gæti bent til þess, að um hættu væri að ræða fram yfir ábyrgðir ríkissjóðs vegna veðdeildar og annara fasteignalána.

Ég hygg líka hæpið að benda á það, þar sem aldrei má veðsetja eign fyrir meira en 80% af kostnaðarverði hennar, að það muni vera um mikla hættu að ræða hvað það atriði snertir.

Það er nú ekki svo, eins og hv. þm. virtist halda fram, að hér væri allt opið fyrir félagsmenn og að þeir séu eftirlitslausir um þær byggingar, sem þeir reisa. Það er síður en svo. Atvmrh. verður að samþ. byggingauppdrætti, sem byggja á eftir. Ráðh. á og að leggja samþykki sitt á, hvar húsin skuli reist, og yfirleitt hafa öruggt eftirlit um allt, er byggingar þessar snertir.

Hv. þm. áleit, að það kæmi málinu ekki við, sem ég hafði haldið fram, að það væri nokkurs virði, að vissa væri fyrir því, að þeir, sem byggðu, hefðu eitthvað sjálfir fram að leggja. Ég álít það mjög mikils virði. Mér er sagt af kunnugum mönnum hér í Rvík, að það sé alsiða, að þeir, sem byggja og fá lán í veðdeild, verði að fá afganginn í einhverskonar okurstofnunum hjá einstökum mönnum. Lánin verða óeðlilega dýr, jafnvel mun ekki einsdæmi að menn verði að greiða 50% eða meira í afföll og vexti af slíkum lánum. Afleiðingin af þessu verður sú, að húsin verða óeðlilega dýr. Ég held því fram, að mjög mikið öryggi sé í því fólgið, að þeir, sem byggja, geti sjálfir lagt fram nokkurn hluta af stofnkostnaði og losni á þann hátt við að lenda í klóm okrara, sem þeir seint eða aldrei losna úr aftur. Ég sagði aldrei, að veðdeildin lánaði einungis út á gamla húsaskrokka, eins og hv. þm. hafði eftir mér. (PHalld: Ég viðhafði ekki þessi orð). Ég sagði aðeins, að hún myndi m. a. lána út á gömul hús og hús, sem búið væri að sprengja upp úr öllu eðlilegu verði. Tel ég það ekki hlutverk veðdeildar að lána út á gömul hús, aðeins til þess að hækka þau í verði fram yfir það, sem eðlilegt er. Ég hygg, að það megi færa sönnur á, að þetta sé rétt. Eftir þessa ræðu hv. 4. þm. Reykv. sannfærðist ég um það, að hann mundi ekki hafa fundið snögga bletti á þessari löggjöf, því aðfinnslur hans voru næsta léttvægar.

Út af því, sem hv. þm. Str. sagði, þá skal ég játa, að það er rétt hugsun, sem kemur þar fram, að ríkissjóður ábyrgist aðeins takmarkaða fjárhæð til þess að reisa ódýr en hentug hús. En vitanlega má ekki í því efni eingöngu miða við byggingar í sveitum. Það er ekki til neins að ganga framhjá því, að byggingarkostnaður verður hér í Rvík alltaf meiri. Ég er hinsvegar fús til að athuga, hvort ekki ætti að setja hámark um ábyrgð ríkissjóðs til hverrar íbúðar. En ég hygg, að það, sem hæstv. atvmrh. heldur fram, að ákveða rúmtak í byggingum, verði það, sem miða verður við í þessu efni. Hvað það snertir, sem hv. 4. þm. Reykv. heldur fram, að hér sé svo miklu lengra gengið heldur en með veðdeildarábyrgð, þá má ekki miða við það, að veðdeildin lánar út á 40% af matsverði, en byggingarsamvinnufélögin 80% af kostnaðarverði. Hlutföll milli kostnaðarverðs og matsverðs munu vera mjög breytileg á ýmsum tímum og standa í sambandi við verðsveiflur og verðlagsbreytingar. Á undanförnum árum hefir matsverð bygginga stundum verið margfalt á við kostnaðarverð. Þess vegna mun það svo, að oft er lánað úr veðdeild hlutfallslega á móts við það, sem til er ætlazt, að ábyrgð ríkissjóðs nái til í byggingarsamvinnufélögunum, og stundum meira.

Þetta átti nú ekki að vera nema stutt aths., og ég sé heldur ekki ástæðu til að fara frekar út í þau ummæli, sem fram hafa komið við þessa umr. Að því leyti hafa þessar aðfinnslur hv. 4. þm. Reykv. verið óþarfar, að það var einmitt meining n. að hafa hámark á stærð þessara bygginga, og að því leyti erum við sammála. En það er þá hitt, sem má deila um, hvar það hámark eigi að vera, hvort eigi að miða við fjögurra herbergja íbúð eða hvort eigi að ákveða ákveðið rúmtak, eins og hæstv. ráðh. benti á. Þetta er hlutur, sem hægt er að ræða um. En það er enginn meiningarmunur um það, að það eigi að setja eitthvert hámark á slíkar byggingar.