21.03.1933
Efri deild: 30. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 842 í B-deild Alþingistíðinda. (826)
25. mál, stjórn vitamála og um vitabyggingar
Magnús Torfason:
Ég skal leyfa mér að bera fram skrifl. brtt. við brtt. á þskj. 177, þess efnis, að orðin „næstkomandi ár“ falli niður. Orðin eru óþörf, hvað sem öðru líður, og ætti þessu mikla deilumáli hér í d. þá að geta verið lokið með þessu. (JBald: Setningin verður nokkuð snubbótt). Hún er góð og gild, og fallegri eftir en áður. — Að því er snertir bandið á eftir Loftsstaðahól, þá get ég borið um það eftir eigin sjón, að það stóð í handriti n. af brtt.