28.03.1933
Neðri deild: 38. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 844 í B-deild Alþingistíðinda. (835)
25. mál, stjórn vitamála og um vitabyggingar
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Þetta mál er hingað komið frá hv. Ed., og fékk það þar greiðan framgang. Það mætti e. t. v. segja, að á tíma eins og þessum sé næsta undarlegt að vera að samþ. lagabálk eins og þennan, sem fjallar m. a. um vita, sem eftir er að byggja. En það er nú einmitt svo, að á tímum eins og þeim, sem nú eru, er mikið vit í því að búa til starfsáætlanir fyrir betri tíma. Og sú er meiningin með þessu frv., sem þó ekki er nýr gestur hér. Það hefir komið til umr. á Alþingi áður og fengið góðar viðtökur. Man ég ekki betur en búið væri að samþ. það í þessari hv. d. 1931 í svipuðu formi eins og það nú er flutt í.
Legg ég svo til, að málinu verði vísað til hv. sjútvn. að lokinni þessari umr.