10.04.1933
Neðri deild: 49. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 845 í B-deild Alþingistíðinda. (837)

25. mál, stjórn vitamála og um vitabyggingar

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

N. hefir athugað frv. og leggur til, að það verði samþ. óbreytt. Hún hefir athugað um alla þá vita, sem þarna eru samþ., og eftir því, sem henni virðist, mun hafa verið tekið tillit til hinna helztu þarfa um vitabyggingar og sömuleiðis hins, sem búast má við, að hægt verði að framkvæma á næstu árum.

Það komu fram raddir innan n. um það, að þörf væri að auka við vitum á stöku stöðum fram yfir það, sem frv. gerir ráð fyrir. N. mun taka þetta til athugunar, ef till. koma frá þeim dm. um þetta við 3. umr., sem sérstaka staðþekkingu hafa á einstökum stöðum. Fyrr sá n. ekki ástæðu til að gera sérstakar till. um þetta.