11.03.1933
Efri deild: 22. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 852 í B-deild Alþingistíðinda. (866)
33. mál, leiðsöguskip
Jón Baldvinsson:
Ég vil mælast til þess við hv. n., að hún sendi hafnarstjóranum í Reykjavík þetta frv. til athugunar, núna á milli 2. og 3. umr. Mér skilst á aths. við frv., að það hafi ekki verið borið undir hann, en þar sem hann hefir haft umsjón stærstu hafnar landsins um langt skeið, álít ég sjálfsagt, að leitað sé umsagnar hans um slíkt frv. og þetta. Það sést á aths., að frv. hefir verið sent skipamiðlarafirma hér í bæ til umsagnar, og ætti þá ekki síður að fá álit hafnarstjórans á málinu. Frv. má gjarnan ganga til 3. umr., en ég óska, að n. hafi fengið umsögn hafnarstjórans áður en það er endanlega afgr. frá þinginu.