16.03.1933
Efri deild: 26. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 853 í B-deild Alþingistíðinda. (870)
33. mál, leiðsöguskip
Ingvar Pálmason:
Samkv. ósk frá hv. 2. landsk. sendi sjútvn. frv. þetta til umsagnar hafnarstjóranum í Rvík. Umsögn hans hefir n. ekki borizt ennþá, og fyrir þær sakir fékk hún málið tekið út af dagskrá siðast. Þar sem nú mál þetta á að öllu leyti eftir að ganga gegnum hv. Nd., þá sé ég ekki ástæðu til þess að fara að tefja það nú, vegna hinnar vantandi umsagnar hafnarstjórans. Þær aðfinnslur, sem hafnarstjórinn kann að bera fram, getur Nd. því tekið til athugunar. Legg ég því til, að mál þetta verði afgr. frá d. nú.