18.03.1933
Neðri deild: 30. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 853 í B-deild Alþingistíðinda. (873)

33. mál, leiðsöguskip

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Frv. þetta hefir gengið í gegnum hv. Ed. og verið athugað þar af hv. sjútvn. Tilgangur þess er sá, að koma leiðsögu skipa í eitt ákveðið kerfi umhverfis allt land. Hingað til hefir það verið svo um leiðsögumenn skipa, að þeir hafa verið skipaðir hingað og þangað eftir beiðnum, sem fram hafa komið, án annarar lagaheimildar en gamallar venju. Nú er það svo, að skipaferðir aukast mjög hér við land, og því er meiri og meiri þörf á að hafa ábyggilega leiðsögumenn sem víðast við strendur landsins. Það hefir jafnvel brytt á því, að skip hafi kvartað undan, að ekki væri hægt að fá löggilta leiðsögumenn þar sem þörf væri á, og af þeim ástæðum talið tormerki á að sigla hér við land. Með þessu frv. á þetta að vera fyrirbyggt, og þannig getur það beinlínis haft áhrif á siglingar hér við land.

Frv. er sniðið eftir tilsvarandi löggjöf annara þjóða, og vona ég, að því verði eins vel tekið í þessari hv. d. eins og í Ed. Legg ég til, að málinu verði vísað til hv. sjútvn. að lokinni umr.