17.02.1933
Efri deild: 3. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í B-deild Alþingistíðinda. (886)
5. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Hv. 2. landsk. verð ég að svara því um 3. tölul. 1. gr., að samkv. þessu frv. á allur ágóði af tóbakseinkasölunni, einnig fyrir þetta ár, að renna beint í ríkissjóð, því að í 2. gr. frv. stendur, að þessi lög öðlist gildi þegar í stað.
Annars vil ég endurtaka það, sem ég sagði áðan um möguleika til samtals um það, að einhver hluti af þessum tekjum fari til þeirra framkvæmda, sem upphaflega var til ætlazt.
Um skemmtanaskattinn er það að segja, að það eru lífsnauðsynjar, sem verða að ráða í þessu efni, og þá er skemmtanaskattur og annað slíkt eitt af því, sem helzt er gripið til til þess að létta undir með ríkissjóði sjálfum. Annað mál er það, að þegar húsið er hálfgert, þá verður að forða því frá skemmdum, en það má þá helzt ekki kosta nema lítið að koma því í það horf. Það eru nú þeir tímar, að fé er ekki aflögu til að verja til byggingar yfir leiklist þjóðarinnar.