18.04.1933
Efri deild: 50. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 887 í B-deild Alþingistíðinda. (924)

24. mál, vega og brúargerð

Frsm. (Halldór Steinsson):

Þetta frv. er stjfrv., og með því á að heimila stj. að taka lán hjá sýslu- og sveitarfélögum, með ábyrgð ríkissjóðs, allt að 60 þús. kr. á ári í 4 ár, 1933—1936, og verja þeim upphæðum til brúargerða.

Tilefni þessa frv. mun vera það, að í 2 síðustu ár hefir vegna fjárskorts ríkissjóðs mun minna verið unnið að brúargerðum eins og öðrum framkvæmdum heldur en undanfarin ár. Hinsvegar er þörf fyrir slíkar framkvæmdir mjög aðkallandi, enda er áhugi manna í sumum héruðum svo mikill, að þeir hafa sjálfir lagt fram talsvert mikið fé til brúargerða.

Má segja, að á síðasta þingi hafi verið gengið inn á þessa braut, þar sem þá var samþ. að taka að láni allmikið fé, sem Rangæingar höfðu safnað til brúargerðar á Þverá, og nú munu þeir hafa safnað allmiklu fé til að brúa Markarfljót. Og það er víðar en í Rangárvallasýslu, sem menn hafa áhuga fyrir þessum málum, og er þar víða fé fyrir hendi, sem stj. gæti fengið að láni til þessara framkvæmda, ef hún aðeins hefði heimild til þess.

N. virtist þess vegna að þetta frv. stefndi í rétta átt, en virtist aðeins, að það gengi ekki nógu langt, og leggur því til að heimila stj. að taka að láni allt að 300 þús. kr. í 3 ár.

Önnur aðalbreyt., sem n. vill gera á frv., er sú, að stj. megi einnig taka slík lán til vegagerða. Það má segja, að mjög svipað standi á um brúargerðir og vegagerðir. Þessar framkvæmdir haldast víða í hendur, og er víðast þörf fyrir þær jöfnum höndum. Og í nokkrum stöðum hér á landi hefir verið hafin fjársöfnun í þessu skyni, eftir því sem vegamálastjóri hefir tjáð n. N. álítur því, að rétt sé, að stj. fái einnig heimild til að taka slík lán til vegagerða.

Þá þótti n. ekki rétt að binda þessi lán við sýslu- eða sveitarfélög, heldur aðeins við það, að lánin séu innanlandslán. Það getur oft staðið svo á, að sveitar- eða sýslufélag geti ekki veitt lán í þessu skyni, en aftur á móti séu einhverjir aðilar innan eða utanhéraðs, sem gjarnan vildu leggja þetta fé fram.

Í frv. stendur, að vextir af þessum lánum skuli vera ½% hærri en hæstu innlánsvextir í Landsbankanum, en n. vill fastákveða, að þeir skuli vera 5½%. N. þótti tryggara, að vextirnir væru fastákveðnir, til þess að þessi lán fremur fengjust. Hinsvegar getur þetta ekki verið mikil áhætta fyrir ríkissjóð, þar sem lánin eiga að endurgreiðast á svo stuttum tíma.

Þá leggur n. til, að fyrirsögn frv. verði breytt, og leiðir það af sjálfu sér, ef hinar brtt. verða samþ.

Þá vil ég að lokum fyrir hönd nefndarinnar óska þess, að frv. verði samþykkt með þeim breyt., sem n. hefir borið fram við það.