21.04.1933
Efri deild: 52. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 890 í B-deild Alþingistíðinda. (929)

24. mál, vega og brúargerð

Frsm. (Halldór Steinsson):

Tilgangur samgmn. með því að fastákveða vexti af þessum lánum 5½% var sá, að örva menn í héruðum landsins að veita lán til þessara framkvæmda. Ef upphæð vaxta yrði mjög á reiki næstu árin, eins og útlit er fyrir, þá óttaðist n., að það mundi draga mjög úr því, að menn lánuðu til þeirra framkvæmda, sem hér er gert ráð fyrir, og að það mundi draga mjög úr gagnsemi l., ef ekki væru fastákveðnir sæmilega háir vextir á þessum lánum. Ég get heldur ekki séð, að þetta mundi muna ríkissjóð miklu, þar sem um lán til einungis 6—8 ára er að ræða, þótt einhverju litlu munaði frá því, sem ákveðið var í stj.frv. Og enn minna munar það þó eftir brtt. hv. 3. landsk., sem ákveður vextina 1% hærri en Landsbankavexti. Ég held því, að hér sé orðið um þá smámuni að ræða, að ekki taki að breyta frv. þess vegna, en hinsvegar aðgengilegra fyrir þá, er lána féð, að eiga von fastákveðinna vaxta. Ég segi þetta þó eingöngu fyrir mig. N. hefir enga aðstöðu haft um að taka afstöðu til skrifl. brtt. Teldi ég því réttara, að hæstv. forseti tæki málið út af dagskrá að þessu sinni, svo n. gæfist kostur á að taka þetta atriði til nýrrar yfirvegunar.