21.04.1933
Efri deild: 52. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 890 í B-deild Alþingistíðinda. (930)

24. mál, vega og brúargerð

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Ég get verið samþ. þeirri breyt., sem frv. hefir tekið, að hækka lánsheimildina og ákveða hana með heilum og rúmum tölum, þar sem á bak við liggur jafnhliða samgöngubótum, að þetta verði einskonar kreppuráðstöfun í atvinnuleysinu. Ég álíti þetta fyrirkomulag að því leyti hentugra og heppilegra en eins og það var í stj.frv. En hinsvegar verð ég að taka undir með hv. 3. landsk. um það, að ég kann betur við, að upphæð vaxtanna af lánum þessum verði miðuð við almenna innlánsvexti í landinu. Nú er frv. fyrir þinginu, sem miðar að því að lækka vextina. Er þá eðlilegt, að það sama þing geri ekkert það með öðrum 1., er fari í aðra átt, heldur miði við þá vaxtapólitík, er kemur fram í þinginu. Það má rétt vera, sem hv. þm. Snæf. sagði, að þetta muni ekki miklu. En þótt það muni nú ekki meiru en ½% eða svo, þá getur vaxtataxtinn breytzt svo á 6—8 árum, að það muni talsverðri upphæð fyrir ríkissjóð. En það, sem ég legg áherzlu á, er að ekki sé brugðið fæti með þessu frv. fyrir annað það, sem Alþ. er að gera. Og þótt rétt og þarft sé að örva þessar framkvæmdir, þá álít ég ekki rétt, að verið sé að hlaupa í kapp við bankastofnanir landsins um lánsfé til þessara hluta.