10.05.1933
Neðri deild: 68. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í B-deild Alþingistíðinda. (940)

24. mál, vega og brúargerð

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Þegar þetta frv. var borið fram, vakti það sérstaklega fyrir stj., að í mörgum tilfellum mætti koma við meiri verkhyggni og vinnusparnaði, ef slík heimildarlög væru sett, sérstaklega þar, sem svo stæði á, að þörf væri á að byggja 2—3 brýr á sömu vegalinu, en ekki veitt fé í fjárl. til að byggja nema eina. Þá væri augljós hagnaður að því, ef hægt væri að byggja hinar brýrnar samtímis. Bæði væri þessu samfara hentugri vinnubrögð og eins sparnaður í sambandi við kaup og flutning á uppsláttartimbri. Þetta voru þær ástæður, sem fyrst og fremst lágu til þess, að þetta frv. var borið fram.

En svo, þegar frv. var tekið til meðferðar í Ed., komu fleiri sjónarmið til greina, og þá sérstaklega að rýmka þannig ákvæði frv., að slík lán yrðu notuð til atvinnubóta, og var því þá skotið inn í frv., að ríkissjóður mætti taka slík lán einnig til vegagerða. Í ýmsum byggðum landsins hefir þetta vakið almenna ánægju, og hafa nú þegar komið allmargar beiðnir um þetta. Hafa þær ekki ennþá verið teknar til athugunar og rannsóknar nema að nokkru leyti, en ég býst við, að ef frv. verður samþ., þá verði þessi heimild notuð áður en langt líður, a. m. k. að því er brúargerðir snertir.

Viðvíkjandi því, sem hv. þm. V.-Húnv. minntist á, hvort sveitir í hans kjördæmi kæmu til greina, ef beiðni kæmi frá þeim, þá skal ég taka það fram, að ég fer ekki í nein hrossakaup um þessi mál. Hinsvegar get ég sagt honum það, að slíkar beiðnir úr hans kjördæmi munu verða teknar til vinsamlegrar athugunar engu síður en beiðnir frá öðrum.