08.05.1933
Neðri deild: 68. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 896 í B-deild Alþingistíðinda. (944)

24. mál, vega og brúargerð

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Ég sé ekki annað en að þessi aðköst séu alveg óþörf. Ég sagði áðan, að ekki yrði látið gilda annarskonar réttlæti um Vestur-Húnavatnssýslu en önnur héruð landsins. Ég hygg því, að hv. þm. sé óhætt að taka þessu með ró og dálítið meiri stillingu, og vil ég vísa frá mér öllum stóryrðum í þá átt, að hér eigi að beita ranglæti.