07.04.1933
Efri deild: 45. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (968)

34. mál, fjárþröng hreppsfélaga

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Mér þykir nú gerast æðivandlifað, ef manni er fundið það til foráttu að mæla ekki með því við 3. umr., sem maður hefir mælt í gegn við 2. umr. Ég mælti þá á móti sumu af því, sem þá var samþ. En mér þótti það þó eigi svo stórvægilegt, að ég fyrir þá sök vildi fella frv. En hv. 1. landsk. ætlast víst til þess, að ég geri það. (JónÞ: Ég sagði, að mótbárum mínum hefði ekkert verið hnekkt). Ég held, að hv. þm. geri of mikið úr þessu. Ég held, að ekki sé verra fyrir lánardrottna, að metið sé, ef það er gert af sanngirni, heldur en að fram fari nauðungaruppboð. Það er líka hægt að verða fyrir réttindamissi í sambandi við uppboð, t. d. með því að veðhafi viti ekki af því. Ég hefði getað hugsað mér þá verkaskiptingu, að ég hefði mælt með frv. eins og það var upphaflega, en að n. hefði mælt með því, sem hún fékk breytt í frv.

Það er rétt, að leiðrétt verði í 5. gr., eins og brtt. fer fram á. Og síðari a-lið 13. gr. hefði einnig þurft að leiðrétta.