12.04.1933
Neðri deild: 51. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 943 í B-deild Alþingistíðinda. (991)

34. mál, fjárþröng hreppsfélaga

Tryggvi Þórhallsson:

Það er ekki vafi á því, að það er full þörf á löggjöf um það efni, sem hér liggur fyrir, en ég efast hinsvegar um, að frv. taki inn á eins mörg svið og það þarf að gera. Frv. gerir þannig, samkv. 2. og 11. gr., aðeins ráð fyrir skuldum og eignum hreppsfélaganna í þessu sambandi, og er þó vitað, að um margt fleira er að ræða. Það er t. d. orðið mjög útbreitt í seinni tíð, að hreppsfélögin gangi í ýmiskonar ábyrgðir, að vísu oftast með einni eða annari baktryggingu. Vil ég beina þeirri aths. til hæstv. ráðh. og þeirrar n., sem málið fær til meðferðar, að það getur ekki komið til mála að lögleiða þetta frv., nema þessi hlið málsins hafi einnig áður verið ýtarlega rannsökuð, sem að ábyrgðum hreppsfélaganna veit. Bendi ég á það í þessu sambandi, að það er tilvalið fyrir n. að snúa sér til Búnaðarbankans um upplýsingar viðvíkjandi þessari hlið málsins.

Út af lánstraustsspjöllunum, sem þetta frv. hafi í för með sér og hv. 4. þm. Reykv. drap á, vil ég segja það, að ekki getur leikið minnsti vafi á því, að 1. loka fyrir ábyrgðir hreppsfélaganna í stórum stíl.