12.04.1933
Neðri deild: 51. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 944 í B-deild Alþingistíðinda. (992)
34. mál, fjárþröng hreppsfélaga
Halldór Stefánsson:
Ég vil taka undir það með hv. 4. þm. Reykv., að stj. gefi þinginu sem fyllstar upplýsingar um ástæðurnar fyrir hinum misjafna efnahag sveitarfélaganna. Ég sagði ekki, að fátækraframfærið væri eina orsök þessa, heldur að það væri stærsta orsökin. Hv. þm. sagði, að enginn mundi verða harðari úti að því er þetta snertir en Rvík, af því að Rvík fengi nú ekki endurgreitt það, sem hún legði út vegna hreppanna til framfærslu þurfalinga. Það má vera, að þetta sé svo nú — ég rengi ekki það, sem hv. þm. segir —, en hitt er þá og jafnframt kunnugt, að mörg sveitarfélög hafa átt um sárt að binda vegna fátækrastyrks til manna búsettra í Rvík. Þetta þarf heldur ekki að koma í bág við mína skoðun; það sýnir þvert á móti, að hrepparnir eru nú komnir í greiðsluþrot.
Ég vil út af orðum hv. þm. benda á það, að ýtarlegar skýrslur liggja fyrir í þessu efni frá þinginu í fyrra. Eins og hæstv. dómsmrh. drap á, samþ. þingið í fyrra breyt. á fátækral., og fylgdi því frv. skýrsla um framfærslukostnað sveitarfélaganna 1930. Hv. 4. þm. Reykv. sat ekki á þingi í fyrra, svo að þetta kann að vera honum ókunnugt. Samkv. þessari skýrslu var mismunurinn á fátækraútgjöldum kaupstaðanna 1930 í hlutfallstölum frá 1,59 upp í 7,02, miðað við 100 kr. skattskyldar tekjur, sem er meira en fjórfaldur munur á þeim kaupstaðnum, sem sveitarþyngslin liggja þyngst á, og þeim, sem þau koma léttast niður á. Fyrir sveitirnar er mismunurinn frá 0 upp í 49 kr., miðað við sama stofn. Samanburður á kaupstöðunum annarsvegar og hreppunum hinsvegar sýnir hlutfallstöluna 2,07 fyrir kaupstaðina á móti 4,43 fyrir hreppana, miðað við sama stofn, 100 kr. skattskyldar tekjur. — Ég hirði ekki að fara frekar út í þessar skýrslur; enda vakti aðallega fyrir mér að benda á, hve miklar upplýsingar þær hafa að geyma um þetta efni. Ég neita því ekki, að sú breyt., sem þingið í fyrra gerði á fátækralöggjöfinni, hafi verið til bóta, en ég undirstrika það enn, að jöfnunin var á engan hátt fullnægjandi.