12.04.1933
Neðri deild: 51. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 945 í B-deild Alþingistíðinda. (993)

34. mál, fjárþröng hreppsfélaga

Pétur Halldórsson:

Út af orðum hæstv. dómsmrh. vil ég segja það, að mér sýnist það ekki hliðstætt, annarsvegar nauðasamningar einstaklinga og hinsvegar nauðasamningar hrepps eða bæjarfélaga, svo að þetta tvennt verði borið saman, fyrst og fremst af þeirri ástæðu, að hrepparnir eða bæjarfélögin hljóta eftir eðli málsins að hafa margvíslegri skilyrði til þess að greiða hverjum sitt á endanum en einstaklingar hafa, sem illa er komið fyrir. Nú er þess líka að gæta, að það er stórt atriði, hve misjafnlega er gengið að gjaldþegnunum í hinum einstöku bæjar- og sveitarfélögum. Á þetta ber að líta, enda er gert ráð fyrir því í frv., að athugað sé, hvort hagnýttur sé til hlítar gjaldstofn sveitarfélaganna, eða um of. En það, sem ég vildi einkum benda á, er það, að ósambærilegt er að vera kröfuhafi einstaklings eða sveitarfélags, sem telur hundrað eða þúsund einstaklinga, þótt þröng geti orðið þar í bili. Það er rétt hjá hæstv. dómsmrh., að sameiginlegt gjaldþol þessara einstaklinga fer eftir árferði, en þótt illa líti út um tíma, getur vel komið fyrir, að þetta sameiginlega gjaldþol aukizt svo, þegar batnar í ári, að hver geti fengið sitt eftir 2—3 góð ár. Á þessu hafa kröfuhafar sveita- og bæjarfélaga byggt, og ég tel það varhugavert að frv. skuli draga úr því trausti.

Hv. 1. þm. N.-M. sagði, að munurinn á framfærsluþunga hinna einstöku sveitafélaga væri mikill, og það er vafalaust rétt. En skyldi það ekki vera nokkuð komið undir því, hvernig þessum málum er stjórnað í hverju hreppsfélagi? Mér skildist á honum, að hann ætti við, að þessi þungi færi eftir því, hve mikið hreppsfélögin yrðu að gjalda með þeim þurfamönnum, sem í kaupstöðum dvelja, því þar er framfærslan auðvitað miklu dýrari en í sveit. Ef þetta hefir verið meiningin hjá hv. þm., vil ég benda honum á, að sveitafélögunum hefir ekki stafað mikill þungi af Reykjavík í þessum efnum á síðustu árum, þar sem framlag til þurfalinga sveitafélaganna í Reykjavík mun hvorki vera talið með í skuldum þeirra né reiknað með því við álagningu útsvara.

Þegar hv. 1. þm. N.-M. ætlar nú að bera saman þennan þunga eftir framtöldum tekjum manna í bæjum og sveitum, ber á það að líta, hver munur er á framtali í bæjum og sveitum. Hjá okkur verður framfærslukostnaðurinn 2 krónur á hverjar 100 kr. af skattskyldum tekjum. En hér kemst naumast ein króna undan framtali, og okkar tekjur eru allar í krónum, en sagt er manna á milli, að ekki sé gengið eins ríkt eftir framtali annarsstaðar á landinu, enda ekki eins auðvelt, að reikna út tekjurnar í beinhörðum krónum. Þetta veldur því, að framfærsluþunginn virðist koma léttara niður í Rvík en mörgum öðrum sveita- og bæjarfélögum.

Það verður ekki til sanns vegar fært að fátækralöggjöfin sé að öllu leyti orsök í fjárþröng sveitafélaganna. Ég þykist þess fullviss, að við rannsókn kæmi margar aðrar orsakir fram. Hæstv. dómsmrh. nefndi rafveitur. Ég gæti hugsað mér að byggingar, t. d. skólabyggingar og fleiri slíkar framkvæmdir, oft framkvæmdar á dýrustu tímum, ættu sinn þátt í því, hvernig komið er.