02.11.1933
Sameinað þing: 1. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (1)

Konungsboðskapur

Allir þingmenn voru til þings komnir, og allir á fundi, sem sé:

A. Landskjörnir þingmenn:

1. Jón Þorláksson, 1. landsk. þm.

2. Jón Baldvinsson, 2. landsk. þm.

3. Jón Jónsson, 3. landsk. þm.

4. Jónas Jónsson, 4. landsk. þm.

5. Guðrún Lárusdóttir, 5. landsk. þm.

6. Kári Sigurjónsson, 6. landsk. þm.

B. Kjördæmakjörnir þingmenn:

1. Ásgeir Ásgeirsson, þm. V.-Ísf.

2. Bergur Jónsson, þm. Barð.

3. Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf.

4. Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr.

5. Bjarni Snæbjörnsson, þm. Hafnf.

6. Björn Kristjánsson, þm. N.-Þ.

7. Einar Árnason, 2. þm. Eyf.

8. Eiríkur Einarsson, 2. þm. Árn.

9. Eysteinn Jónsson, 1. þm. S.-M.

10. Finnur Jónsson, þm. Ísaf.

11. Gísli Sveinsson, þm. V.-Sk.

12. Guðbrandur Ísberg, þm. Ak.

13. Halldór Stefánsson, 2. þm. N.-M.

14. Hannes Jónsson, þm. V.-Húnv.

15. Haraldur Guðmundsson, þm. Seyðf.

16. Héðinn Valdimarsson, 2. þm. Reykv.

17. Ingólfur Bjarnarson, þm. S.-Þ.

18. Ingvar Pálmason, 2. þm. S.-M.

19. Jakob Möller, 1. þm. Reykv.

20. Jóhann Jósefsson, þm. Vestm.

21. Jón Ólafsson, 1. þm. Rang.

22. Jón Pálmason, þm. A.-Húnv.

23. Jón Sigurðsson, 2. þm. Skagf.

24. Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Árn.

25. Magnús Guðmundsson, 1. þm. Skagf.

26. Magnús Jónsson, 3. þm. Reykv.

27. Ólafur Thors, þm. G.-K.

28. Páll Hermannsson, 1. þm. N.-M.

29. Pétur Halldórsson, 4. þm. Reykv.

30. Pétur Magnússon, 2. þm. Rang.

31. Pétur Ottesen, þm. Borgf.

32. Thor Thors, þm. Snæf.

33. Tryggvi Þórhallsson, þm. Str.

34. Vilmundur Jónsson, þm. N.-Ísf.

35. Þorleifur Jónsson, þm. A.-Sk.

36. Þorsteinn Þorsteinsson, þm. Dal.

Konungsboðskapur.

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis, stóð upp forsætisráðherra, Ásgeir Ásgeirsson, og las upp opið bréf, er stefnir Alþingi saman til aukafundar fimmtudaginn 2. nóvember 1933, dags. 5. okt. (Sjá Stjtið. 1933, A. bls. 329).

Því næst las forsætisráðherra upp konungsumboð sér til handa til þess að setja Alþingi, dags. s. d. (Sjá Stjtíð. 1933, A. bls. 329).

Síðan mælti forsætisráðherra:

Ég bið hv. þm. að rísa úr sætum sínum og árna landi, þjóð og konungi allra heilla.

Lengi lifi ættjörðin og konungurinn!

Tóku þm. undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Forsætisráðherra kvaddi elzta þingmanninn, Þorleif Jónsson, þm. A.-Sk., til að stýra fundi, þar til kosinn væri forseti sameinaðs þings.

Aldursforseti gekk þá til forsetastóls og tók við fundarstjórn. Kvaddi hann sér til aðstoðar sem fundarskrifara þá Tryggva Þórhallsson, þm. Str., og Pétur Magnússon, 2. þm. Rang.