27.11.1933
Neðri deild: 20. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í C-deild Alþingistíðinda. (1000)

31. mál, virkjun Fljótár

Halldór Stefánsson:

Það virðist svo, sem hv. fyrirspyrjandi sé óánægður við fjhn. fyrir það, að hún skuli ekki nú þegar hafa skilað áliti um þetta mál hans. Ég held nú, að jafnvel þó að mál þetta væri ekki eins mikið vandamál og það í raun og veru er, þá sé ekki rétt að vera óanægður við n., þó að hún hafi ekki afgr. það ennþá, því að það þekkist tæplega hér á Alþingi, að nefndir afgreiði mái svo að segja strax og heim hefir til þeirra verið vísað. Hv. þm. var að vísa til máls í Ed., sem hann taldi svipað þessu, en hefði fengið þar mjög fljóta afgreiðslu. Um það mál er það að segja, að það er komið mjög langt í framkvæmd, en mál hv. þm. er ennþá aðeins í hugum manna, auk þess sem ágreiningur er um það milli nánustu aðilja, svo sem sýslunefndarinnar í Skagafjarðarsýslu og Siglufjarðarkaupstaðar. Er því ekki nema eðlilegt, að það þurfi meiri athugun en mál, sem þegar er komið til framkvæmda.