27.11.1933
Neðri deild: 20. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í C-deild Alþingistíðinda. (1001)
31. mál, virkjun Fljótár
Bernharð Stefánsson:
Ég býst við, að ágreiningur sá, sem hv. form. fjhn. var að tala um, að væri milli sýslunefndar Skagafjarðarsýslu og Siglufjarðarkaupstaðar um mál þetta, verði því ekki til fyrirstöðu, því að hann mun þegar vera jafnaður. Vænti ég því, að nál. komi á morgun frá hv. n., og læt ég mér það lynda.