17.11.1933
Neðri deild: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í C-deild Alþingistíðinda. (1010)

36. mál, sala mjólkur og rjóma

Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:

Hv. frsm. tók það réttilega fram, að ég hefði ekki verið viðstaddur í n., þegar ákveðið var að flytja þetta frv. En mér fannst hv. frsm. ekki segja allan sannleikann um meðferð þessa máls á síðasta þingi, þar sem hann sagði, að það hefði verið afgr. mótmælalaust. Ég man ekki betur en að frv. væri upphaflega flutt með annari fyrirsögn en síðar var samþ. Það hét þá frv. um sölu mjólkur og rjóma, og átti að bæta aðstöðu framleiðenda á mjólkurmarkaðinum. Meginmál þess frv. var síðar fellt niður, og aðeins fyrsta og síðasta gr. látnar standa. Fyrirsögninni var líka breytt og frv. endanlega kallað frv. til l. um heilbrigðisráðstafanir um sölu mjólkur og rjóma. Og þetta var alls ekki samþ. með samhlj. atkv.

Þá þykir mér rétt að benda á það, að l. þessi eru ekki komin til framkvæmda enn. Og mér finnst það meira en lítið bráðlæti að fara að heimta breyt. á l. áður en þau hafa nokkuð fengið að sýna sig í reyndinni, og held ég, að þessar breyt. hefðu öllum að skaðlausu mátt bíða næsta þings. Aðalbreyt., sem farið er fram á, eru tvær. Þetta frv. kveður nánar á um það, hvar skuli gerilsneyða mjólkina, sem sé, að nú skuli það aðeins gert í fullkomnum, viðurkenndum mjólkurbúum framvegis. Ennfremur, að undanþágu frá gerilsneyðingarákvæðinu skuli aðeins veita þeim mjólkurbúum, sem hafi gerilsneyðingaráhöld til, en ekki þeim, sem engin slík áhöld hafa, þó að á þeim sé gætt fullkomins hreinlætis. En auðvitað eru það þau síðarnefndu, sem þurfa helzt undanþágunnar við. Ég skal játa það, að mikil þörf er á skýrum ákvæðum um meðferð mjólkur og rjóma af heilbrigðisástæðum, og rétt sé að krefjast þess, að mjólk sé gerilsneydd, nema tryggt sé, að hún geti ekki verið saknæm. En ég sé ekki betur en að með þessum breyt. á l. sé mikill þorri mjólkurframleiðenda útilokaður frá mjólkursölu til bæjanna. Með þessu er framleiðendum þeim, sem þannig fá einkaleyfi á mjólkursölunni, gert hægara fyrir með að setja neytendunum stólinn fyrir dyrnar með mjólkurverð og slíkt. Hér í Rvík er aðeins ein slík stöð, Mjólkurfélag Reykjavíkur. Landbn. hafa borizt tvo bréf, þar sem kvartað er yfir þessu fyrirkomulagi. Annað bréfið er frá manni, sem um mörg undanfarin ár hefir selt hér mjólk frá um 20 bændum. Bréfið er langt, og ætla ég því aðeins að lesa kafla úr því:

„.... Sumar mjólkurbúðirnar, sem ég hefi nú á leigu, er samið um til meira en árs hér frá, og auk þess hefi ég margt fólk í minni þjónustu, sem er ráðið hjá mér, sumt um ákveðinn og sumt um óakveðinn tíma. Væri mér bugað frá mjólkursölunni eins og nú standa sakir, yrði ég skaðabótaskyldur gagnvart mínum viðskiptavinum, og það í svo stórum stíl, að ég fengi ekki undir því risið, og auk þess færi heimili mitt á vonarvöl.

Eyjólfur Jóhannsson, forstjóri Mjólkurfélags Rvíkur, hefir gengið fram í því nú undanfarið, að nefndum lögum frá síðasta þingi yrði framfylgt og tekinn yrði réttur af einstökum mönnum um sölu ógerilsneyddrar mjólkur og þar með loka mig og aðra, sem gera mjólkursölu og mjólkurframleiðslu að atvinnu sinni, frá starfanum. Ég hefi farið þess á leit við hann, að mjólkurfélagið, sem hann veitir forstöðu, tæki af mér mjólk til gerilsneyðingar, svo ég gæti óáreittur haldið áfram sölunni, en hann hefir þverneitað mér um þá hjálp. Bað ég hann þá að selja mér mjólk, svo ég gæti haldið afram sölunni, meðan sá tími væri að renna út, sem ég hefi samið um mjólkurbúðirnar og vistráðið fólk, en hann (Eyjólfur Jóhannsson) gaf mér þvert nei við því.

Nú eru það tilmæli mín til hins háa Alþingis, að færi nú svo, að hinar fyrirhuguðu breytingar á lögunum yrðu samþykktar á þessu þingi, þá yrði því bætt inn í lögin, að mjólkurbúin utan Rvíkur og í Rvík yrðu skylduð til þess að gerilsneyða mjólk fyrir einstaka menn, sem stunduðu mjólkurframleiðslu eða mjólkursölu eða hvorttveggja, fyrir hæfilegt gjald, sem ekki færi fram úr tveimur aurum á lítrann eða það sem löggjafinn teldi hæfilegt gjald eftir ástæðum.

Það skal ennfremur tekið fram, að ég hefi farið þess á leit við önnur mjólkurbú en Mjólkurfélags Rvíkur, að þau gerilsneyddu fyrir mig nýmjólk þá, sem ég hefi til sölu, en fengið þvert nei við . . . .“

Mér er nú spurn: Hvað á að gera við þessa menn? Þeir mega ekki selja mjólkina ógerilsneydda. Þeir eiga það á hættu að verða alveg að hverfa með sína mjólk af markaðinum. Af þessu leiðir, að Mjólkurfélag Rvíkur og Korpúlfsstaðabúið fá óbundnar hendur um mjólkurverð í Rvík. Þessir menn benda báðir á það með réttu, að l. séu ótæk þannig, an þess að jafnframt séu sett inn ákvæði þess efnis, að mjólkurbúunum sé gert að skyldu að gerilsneyða mjólk fyrir alla, sem fara fram á það. Ríkisstj. eða bæjarstj. gætu svo haft hönd í bagga um það, að gerilsneyðingin yrði ekki seld svo dyrt, að mjólkurframleiðandinn gæti staðið straum af þeim kostnaði með venjulegu mjólkurverði.

Ég hefi svo ekki fleira um þetta mál að segja í bráð, en vonandi tekur landbn. bréfin fyrir, og gerir þær ráðstafanir, sem gera þarf.