18.11.1933
Neðri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í C-deild Alþingistíðinda. (1021)
39. mál, ábúðarlög
Flm. (Eysteinn Jónsson):
Eins og allur þingheimur kannast við og kunnugt er öllum hér á landi, var á síðasta Alþ. samþ. mikill lagabálkur, sem gekk til á það, að gera íslenzkum bændum kleift að stunda áfram framleiðslu á jörðum sínum þrátt fyrir mikið verðfall á afurðum þeirra. Ég ætla ekki að fara frekar út í það, hvað það var, sem kom Alþ. til þess. En það, sem kom mér til að flytja þetta litla frv. á þskj. 53, var það, sem nú skal greina.
Áður en áðurnefnd lög komu til framkvæmda var það svo, að ýmsar lánsstofnanir í landinu gengu að bændum og tóku jarðir þeirra upp í skuldir. Þar, sem ég er bezt kunnugur á landinu, urðu nokkur brögð að þessu, gengið að allmörgum bændum og teknar af þeim jarðirnar. Ég skal ekki segja, hvort þessir bændur hefðu fengið þá stoð með þessari löggjöf, sem hefði orðið nægileg til þess, að þeir hefðu getað setið áfram á jörðum sínum. En hér var ekki um slíkt að ræða, að þeir fengju neitt svigrúm til að reyna að notfæra sér löggjöf þessa, ef möguleiki hefði verið til að halda jörðunum með hjálp hennar. Ennfremur má gera ráð fyrir, að þótt löggjöf þessi reynist allvel og geti afstýrt ýmsum vandræðum, þá geti þó svo farið, að bændur missi jarðir sínar í hendur lánsstofnunum. Öllum er það kunnugt, sem til þekkja, að fátt getur örðugra komið fyrir bónda, sem lagt hefir á sig og sína mikinn þrældóm til þess að geta borgað niður jörð sína, en að missa síðan jörðina, sem hann hefir um margra ára skeið verið að reyna að eignast, og ofan í kaupið fyrir fullt og allt mörg þúsund , sem hann hefir lagt í jörðina Allt skeður þetta fyrir það eitt, að ófyrirsjáanlegar ástæður hafa orðið þess valdandi, að viðkomandi gat ekki staðið í skilum. Ég ætla að tilfæra eitt dæmi, til þess að gefa hv. þm. nokkra hugmynd um þetta.
Ég þekki mann, sem fyrir 7 árum síðan keypti jörð fyrir 12 þús. kr. þessi maður var í haust búinn að borga þessa jörð niður í 5.400 kr., og var því búinn að borga 6.600 krónur. Þessi maður hefir lagt sérlega hart að sér til þess að geta haft undan kröfum bankans, sem hann skuldaði, en þegar verðfallið á landbúnaðarafurðunum kemur til sögunnar, hættir þessi bóndi að geta staðið nægilega í skilum. Og hvað skeður? Endalokin verða þau, að bankinn gengur að þessum bónda og tekur af honum jörðina. Og það þarf ekki að taka það fram, að fyrir allt það erfiði og strit, sem bóndinn hefir lagt á sig til þess að geta greitt þessar 6.600 krónur, fær hann ekkert í aðra hönd, ekki einu sinni rétt til þess að sitja áfram á jörðinni. Mér virðist, að öllum ætti að vera það ljóst, þvílíkir erfiðleikar eru þessu samfara; a. m. k. er bændum það ljóst. Ef þing og stjórn sýna ekki í verki skilning sinn á þessum vandamálum þeirra, finnst þeim sú vernd, sem stjórnarvöldin gætu veitt þeim, vera sér harla lítils virði.
Þegar ég heyrði um aðfarir þessar að bændum, þá fór ég að hugsa um, hvort ekki mundi finnast leið til þess, að bændur, sem yrðu að láta jarðir upp í skuldir til banka, gætu fengið sæmilega ábúð áfram á þessum jörðum, sem þeir hafa haft svo mikið fyrir, eins og t. d. bóndinn, sem ég gat um áðan. Eins og sjálfseign manna á jörðum er nú mjög víða komið, þá er leiguliðaábúð undir góðum ábúðarskilmálum í mörgum tilfellum sízt verri en sjálfseignarabúð, því að oft verða sjálfseignarbændurnir að dragast með mjög þungan skuldabagga, eins og tilfært dæmi sýndi. En þegar ég fór að athuga möguleikann fyrir því, að þessir menn þyrftu ekki að hrekjast frá jörðunum, þá sá ég, að þótt almenna reglan í ábúðarlögunum væri sú, að jarðir skyldu leigðar í lífstíðarábúð, þá eru undantekningar frá þessu um þær jarðir, sem sérstaklega stendur á um, og er hætt við því, að þar verði jarðir bankanna taldar heyra undir. Enda er það svo í framkvæmdinni nú, að jarðir þær, sem bankarnir taka, eru leigðar til eins og eins árs í einu. Þessu fylgir auðvitað það, að bændur hafa ekkert öryggi um ábúðina, og hvort þeir fá að halda ábúðinni, fer jafnan eftir því, hvort nokkur kaupandi býðst að henni. En mér finnst, að ekki megi minna vera en að bóndi, sem eins eða svipað er ástatt um og bóndinn, sem ég gat um áðan, hafi tryggingu fyrir því, að þótt banki taki jörð á þennan hátt, fái hann þó að halda ábúðinni. Og brtt. mín tekur ekki til annara jarða.
Mér er það ljóst, að það, sem aðallega mun verða fært fram gegn frv. mínu um þessa breyt. á ábúðarl., er, að ef bankarnir verði lagðir undir þessa skyldukvöð, muni verða örðugra að fá sæmilegt verð fyrir jarðirnar, og því rýrna veðhæfi þeirra. Í sambandi við þessa mótbáru vil ég benda á það, að hér mundi verða, ef þetta frv. yrði að l., alveg eins ástatt og um jarðir yfirleitt, sem eru í leiguábúð, því að eftir gildandi löggjöf er skylt að leigja þær til lífstíðar.
Ég vil taka það fram, að ég óska, að þessi till. mín til breyt. á ábúðarl. verði byrjunarskref í þá att, að ríkið keypti þær jarðir, sem annars falla undir hanka og liggja undir skemmdum vegna tíðra ábúendaskipta, og ætlaði ég að bera fram þáltill. um það efni. En hv. 2. þm. N.-M. hefir flutt frv. á þskj. 58, sem, að mér skilst, gerir ríkissjóði að skyldu að kaupa þessar jarðir eftir fasteignamati.
Ég hafði hugsað mér, að þessi breyt. á ábúðarl. yrði byrjunarskref og til verndar bændum, sem komnir eru í þá aðstöðu, sem ég hefi lýst, á meðan verið er að koma því í kring, að ríkið kaupi þær jarðir, sem lenda í höndum bankanna, og ég tel nauðsynlegt, að Alþ. setji löggjöf um það hið fyrsta.
Ég legg til, að málinu verði vísað til landbn. að aflokinni þessari umr., og vil um leið skora á þá hv. n. að rannsaka, hvernig koma megi því svo fyrir, að maður eins og sá, sem ég tilfærði dæmi um, geti komizt hjá því að þurfa að hrekjast í burt af ábýlisjörð sinni.
Ennfremur vil ég beina því til Alþ., að það verður ekki til þess að auka traust manna á þingræði og lýðræði, ef hv. Alþ. sýnir engan lit á að leysa þau vandræði, sem steðja að í þessu efni. Til þess að slíkt traust skapist, þurfa menn að finna, að á þingi sé vel farið með mestu vandamál þeirra og reynt að leysa þau á þann hátt, sem bezt kemur að liði.