18.11.1933
Neðri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 107 í C-deild Alþingistíðinda. (1024)

39. mál, ábúðarlög

Flm. (Eysteinn Jónsson):

Þegar ég talaði um, að gera yrði þær kröfur til Alþ., að það sýndi alúð í meðferð þessara mála, þá átti ég ekki við afgreiðslu ábúðarlagafrv., heldur átti ég þar við jarðamálið sjálft. Ég átti við, að taka yrði hér á Alþingi til rækilegrar athugunar og yfirvegunar, hvaða úrræði ætti að hafa í jarðamálunum yfirleitt, og rannsaka, hvort ekki er rétt að fara þá leið, sem fjöldamargir bændur hafa bent á, að keppa að því, að sem flestar jarðir komist í eigu ríkisins. Ég hafði ætlað mér að bera fram till., sem miðaði í þá átt, en sýnist nú, að það muni vera óþarfi, vegna frv. hv. 2. þm. N.-M.

Mér þykir rétt að taka það fram, að þau dæmi, sem ég tók áðan, áttu ekki við Búnaðarbankann, heldur útibú Landsbankans á Eskifirði. Mér er ekki eins kunnugt um, hvernig Búnaðarbankinn heldur á þessum málum. Það, sem ég hefi yfirleitt sagt um þetta, er miðað við það, sem ég þekki bezt til, en það eru frekast aðgerðir útibús Landsbankans á Eskifirði.