18.11.1933
Neðri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í C-deild Alþingistíðinda. (1035)

41. mál, laun embættismanna

Flm. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:

Eins og kunnugt er, falla niður 1. um dýrtíðaruppbót embættismanna í lok þessa árs. Dýrtíðaruppbótin er nú komin niður í 15%, og verður ekki sagt, að hægt sé að fella hana niður með öllu, vegna þess, hvernig launakjör embættis- og starfsmenn ríkisins hafa yfirleitt við að búa. Sú endurskoðun á launalögunum, sem boðuð hefir verið hér þing eftir þing, hefir enn ekki farið fram, og er ekki sýnilegt, að hún fari fram svo fljótt, að breyt. komist í gegn á næsta ári. Með þessu frv. er farið fram á að framlengja l. um dýrtíðaruppbót til ársloka 1934. En þar sem dýrtíðaruppbótin er nú orðin svona lág, 15% , er bersýnilegt, að hinir lægst launuðu starfsmenn ríkisins fá ekki framfleytt sér og sínum á laununum. Enda mun ríkisstj. Þetta ár og jafnvel hið síðasta líka hafa greitt hinum lægst launuðu nokkru hærri uppbót en tilskilið er í l., án sérstakrar samþykktar frá þinginu; hygg ég, að hún hafi borið sig saman við fjvn. þessarar d. um það efni. Ég hélt, að uppbótin hefði verið miðuð við 25% af launum, sem ekki fara yfir 3.000 kr. En síðan hefi ég fengið upplýsingar um, að dýrtíðaruppbótin hafi verið reiknuð 25%, ef ekki hefir farið yfir 3.500 kr. launin og dýrtíðaruppbótin til samans, og hefi ég ekkert á móti, að sú breyt. sé gerð á frv.

Legg ég svo til, að málinu sé vísað til fjhn. að lokinni þessari umr.