18.11.1933
Neðri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í C-deild Alþingistíðinda. (1054)
41. mál, laun embættismanna
Flm. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:
Ég hefi í sjálfu sér ekkert á móti því, sem hæstv. fjmrh. drap á, að fjvn. taki til athugunar að breyta þessu frv. í þáltillform, ef hæstv. stj. er eitthvað ljúfara að greiða þetta eftir þáltill. heldur en lagafrv. Ég get tekið undir það, að það mætti alveg eins ákveða, að óbreytt héldist sú dýrtíðaruppbót, sem greidd er á yfirstandandi ári, en það má alveg eins gera á þann hátt, að framlengja lögin. Skiptir engu máli, hvor leiðin er farin.